Hringbraut 94, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var 26 daga á skrá
Verð |
54,9
|
Stærð |
177
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
311
|
Skráð |
27.1.2024 |
Fjarlægt |
23.2.2024 |
Byggingarár |
1946 |
mbl.is |
|
Stuðlaberg fasteignasala kynnir 75 fm 3ja herbergja íbúð ásamt 100 fm bílskúr. Íbúðin sem er á jarðhæð skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö rúmgóð svefnherbergi, geymslu og þvottahús. Bílskúrinn býður upp á mikla möguleika.
Íbúðin er í útleigu og er 12. mánaðar uppsagnarfrestur á leigusamningi.
Forstofa hefur flísar á gólfi.
Eldhús hefur flísar á gólfi og þar er eikarinnrétting með ofni, helluborði og háf.
Baðherbergi hefur eikarinnréttingu en tengi fyrir þvottavél er í innréttingu. Upphengt salerni og baðkar með sturtuhaus.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými og hafa parket á gólfi.
Svefnherbergin hafa parket á gólfi og þar eru fataskápar.
Geymsla og þvottahús hefur flot á gólfi og eru bæði rými innan íbúðar.
Bílskúr hefur flot á gólfi en þar er búið að stúka af tvö herbergi aftast með nýlegum gluggum en allir gluggar í bílskúr eru nýlegir.
Möguleiki að útbúa rúmgóða íbúð í bílskúr ásamt því að vera með ca 30 fm bílskúr/geymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson
Löggiltur fasteignasali
S. 895-1427 eða 420-4000
magnus@studlaberg.is
------------------------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.700 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.