Lindargata 37, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá
Verð |
59,9
|
Stærð |
105
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
569
|
Skráð |
24.8.2018 |
Fjarlægt |
29.8.2018 |
Byggingarár |
2010 |
mbl.is |
|
Rúmgóð og glæsileg 3ja herbergja 105,3 fm. íbúð á 2. hæð ásamt bílastæði í bílageymslu í glæsilegu lyftuhúsi við Lindargötu í Skuggahverfinu í Reykjavík. Húsvörður er starfandi í húsinu og regluleg þrif á sameign.
Bókaðu skoðun
Nánar um eignina:
Komið er inn í hol með góðum innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er opin við eldhús, gólfsíðir gluggar og parket á gólfi. Útgengt er úr á svalir frá stofunni.
Eldhús með vandaðri eldhúsinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, Miele eldhústæki, granít borðplata og parket á gólfi.Gólfsíður gluggi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, gólfsíður gluggi og parket á gólfi.
Svefnherbergi er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri flísalagðri sturtu, baðkari og góðri innréttingu. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar, góð innrétting og flísar á gólfi.
Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Geymsla íbúðar er staðsett í kjallara hússins.
Sér stæði í bílageymslu er í lokuðum og upphituðum bílakjallara með rafbílahleðsu.
Sameign er afar snyrtileg með sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Allar nánari upplýisngar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 867 3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.