Skipholt 17, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá

Verð 45,0
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 346
Skráð 7.3.2016
Fjarlægt 15.3.2016
Byggingarár 1968
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Mjög góð 130 fm íbúð á tveimur hæðum (efstu) með sérinngang af svölum við Skipholt 17 í Reykjavík. Íbúð 0302.  Tvö svefnherbergi og tvær stofur. Fallegt útsýni frá inndregnum svölum efri hæðar til suðurs. Neðri hæð skiptist í forstofu, snyrtingu, eldhús og stofu. Efri hæð skiptist í tvö svefnherbergi, þar af eitt stórt, stofu og baðherbergi. Stórar suður svalir. Íbúðin er í leigu og selst með réttindum og skyldum leigusala.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er íbúð neðri hæðar skráð 60,4 fm, íbúð efri hæðar 61,8 fm og sér geymsla á hæðinni skráð 7,9 fm. Samtals 130,1 fm.

Íbúðin hefur verið standsett á síðustu árum. Gengið er inn um sérinngang inn á flísalagða forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er flísalögð snyrting. Stofan er parketlögð með góðum gluggum til suðurs. Eldhúsið er nokkuð stórt og er opið yfir í stofu með eikarinnréttingu og glugga. Á efri hæð er komið upp á parketlagað stofu/sjónvarpsstofu. Þaðan er gengið út á 15 fm inndregnar svalir.Svefnherbergin eru tvö með parketi á gólfum og fataskápum. Hjónaherbergið eru mun stærra með litlu fataherbergi. Baðherbergið á hæðinni er flísalagt með baðkari og tengi fyrir þvottavél.

Seljandi  eignaðist fasteignina í skuldaskilum og  hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali allan nauðsynlegan aðgang til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.
 
Utan opnunartíma gefur  Hilmar Þór Hafsteinsson löggiltur fasteignasali upplýsingar s.  824-9098 eða hilmar@eignamidlun.is.  

Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is. 

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga


Myndir

Mynd 1