Skaftahlíð 33, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 72,9
Stærð 85
Tegund Hæðir
Verð per fm 862
Skráð 18.4.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 1957
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Fallega og sjarmerandi 4 herbergja risíbúð í fjórbýlishúsi á frábærum stað í botnlangagötu við Skaftahlíð 33 með suður svölum. Skv F.M.R er eignin skráð 84,6 m2. Þar sem eignin er að hluta til undir súð eru nýtanlegir fermetrar fleiri en skráðir fermetrar gefa til kynna. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 83,9 m2 auk 0,7 m2 geymslu undir stiga. Auk þess er risloft yfir eigninni. Þetta er frábærlega vel staðsett eign í botnlagagötu þar sem að öll helsta þjónusta er við hendina. 
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Forstofa:  Komið er inn um sameiginlegan inngang með einni íbúð. Þegar uppí íbúð er komið er komið inn á hol með  fatahengi og skóskápum sem geta fylgt með.
Stofa: Rúmgóð stofa og borðstofa eru samliggjandi og með gluggum á tvo vegu og fallegu útsýni. Harðparket er á gólfi og útgengi út á suður svalir frá stofunni. Í stofunni er veggfastur skápur sem fylgir með.
Eldhús: í eldhúsi er innrétting með góðu skápaplássi og er að hluta síðan 2017 og að hluta til upprunaleg, máluð og snyrtileg. Límtrésborðplata og einnig flísalögð borðplata að hluta. Uppþvottavél er innbyggð og bæði hún og ofn og spanhelluborð var endurnýjað 2017 og þá var einnig dregið í nýtt rafmagn í hluta í eldhúsinu og settur nýr vaskur og blöndunartæki. Stór opnanlegur gluggi hleypir góðri birtu inn í eldhúsið.
Baðherbergi: Á baðherberginu er baðkar með sturtuaðstöðu, endurnýjaður skápur undir vaski og innbyggður skápur með speglahurðum fyrir ofan. Annar innbyggður skápur með miklu skápaplássi er á baðherberginu og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú tvö rúmgóð og eitt minna. Harðparket er á gólfum og í hjónaherbergi eru innbyggðir eldri skápar á heilum vegg með miklu skápaplássi. Í minnsta herberginu er tengi fyrir þvottavél.
Sameign: Í kjallara er sérgeymsla undir stiga og sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi.
Niðurlag: þetta er björt og falleg íbúð á þessum eftirsótta stað í hlíðunum þar sem örstutt er í skóla, leikskóla og alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23