Sólvallagata 27, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 133 daga á skrá
Verð |
51,2
|
Stærð |
96
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
536
|
Skráð |
9.8.2017 |
Fjarlægt |
20.12.2017 |
Byggingarár |
1955 |
mbl.is |
|
Heimili fasteignasala s: 530-6500, kynnir í sölu 95,6fm þriggja til fjögurra herbergja íbúð á annari hæð við Sólvallagötu í Reykjavík.
Gengið er inn i íbúðina um sameign og komið inn í anddyri sem er með flísum á gólfi og geymir fatahengi. Frá anddyri er gangur/hol sem tengir saman rými eignarinnar. Borð- og setustofa eru samliggjandi og frá setustofu er útgengt á svalir sem snúa til austurs. Á gólfi í stofum er parket og hægt er að útbúa þriðja svefnherbergið úr því rými sem nú geymir borðstofu. Við enda gangs/hols er eldhúsið sem er með ágætri innréttingu og útgengi út á hinar svalir eignarinnar og snúa þær í vestur. Frá eldhúsi er síðan gengið inn í minna svefnherbergi eignar. Baðherbergi er með ágæti innréttingu, opnanlegu fagi, innfelldum eldri skápum og baðkari með sturtuhaus. Veggur við baðkar var nýlega flísalagður.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var sett rafmagnstafla í húsið árið 2000, skipt um skólplagnir árið 2006 og stigagangur málaður árið 2009. Árið 2011 var skipt um allt frárennsli frá vöskum, þvottavélum og baðkörum í öllum íbúðum hússins og nýjar neysluvatnslagnir lagðar. Þá var húsið múr-, steypuviðgert og málað árin 2011 og 2014, framhlið árið 2011 og bakhlið árið 2014.
Góð eign á besta stað þar sem miðbær Reykjavíkur er í göngu fjarlægð, Vesturbæjarskóli við enda götunnar og stutt í alla aðra almenna þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, löggiltur fasteignasali, s. 896-2953, brynjolfur@heimili.is