Pósthússtræti 3, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 59 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 176
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 6.1.2020
Fjarlægt 5.3.2020
Byggingarár None
mbl.is

Til leigu hjá Reitum: Endurnýjað skrifstofuhúsnæði í sögufrægu húsi

Fyrsta flokks uppgerðar skrifstofur í Pósthússtræti 3 í Miðbæ Reykjavíkur. Húsið er sögufrægt hlaðið steinhús endurgert á vandaðan klassískan hátt þannig að arkitektúr og útlitseinkenni hússins fái notið sýn. Í öllum rýmum, utan þess minnsta, er ný kaffiaðstaða með vandaðri hnotuinnréttingu og steinborðplötu, undirborðsvask og innfelldum ísskáp. Vönduð lýsing er í öllu húsinu og gegnheilt eikarparket lagt í klassískt "chevron" mynstur. Ný vönduð salerni eru á öllum hæðum. Umsjón er með allri sameign hússins. Í kjallara eru geymslurými, bæði sameiginlegt rými og sérrými sem hægt er að fá leigð með skrifstofunum. Stærðir eru brúttó stærðir. Afhending við undirritun leigusamnings.

1. hæð: 72,2 og 101,5 fm rými
2. hæð: 97,3 fm rými 
3. hæð: 176,4 fm rými með mikilli lofthæð sem skiptist í tvennt út frá gangi í miðju húsinu. Glerdyr loka rýminu frá stigagangi.

Myndband um sögu hússins 

Nánari upplýsingar veitir Halldór Jensson, sölustjóri, í síma 840 2100 eða í netfanginu halldor@reitir.is. Reitir fasteignafélag er eigandi húsnæðisins og er það eingöngu til leigu hjá Reitum. 

Pósthússtræti 3 var hlaðið árið 1885 úr tilhöggnu grjóti með sama hætti og Alþingishúsið enda er höfundur þess F. A. Bald sem var yfirsmiður við byggingu Alþingishússins árið 1881. Húsið var fyrsta meiri háttar mannvirkið sem bæjarstjórn Reykjavíkur stóð fyrir að reist yrði og hýsti það Barnaskóla Reykjavíkur á árunum 1883 til 1898. Frá 1898 til 1915 var rekið pósthús í húsinu en einnig voru þar höfuðstöðvar Landsíma Íslands frá 1906 til 1931. Eftir það var húsinu fengið hlutverk Lögreglustöðvar Reykjavíkur og þjónaði það því hlutverki þar til ný lögreglustöð við Hlemm var tekin í notkun um 1965. Á meðan húsið var aðallögreglustöð Reykjavíkur voru frægar fangageymslur í kjallaranum, aðallega til þess að hýsa menn sem voru teknir úr umferð vegna ölvunar á almannafæri. Þeir voru settir í „Steininn“ eða „Grjótið“, eins og kallað var. Eftir 1965 varð húsið aftur tekið í þágu Pósthússins í Reykjavík en undanfarin ár hefur þar verið starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar.

Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987. Innan eignasafnsins eru nú um 140 fasteignir, samtals um 460.000 fermetrar að stærð, auk metnaðarfullra þróunarverkefna. Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar, m.a. með grænum leigusamningum við fjölda viðskiptavina. 

Kynntu þér þjónustu Reita og fleira húsnæði til leigu á www.reitir.is/skrifstofur 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16