Sæbólsbraut 30, 200

Fjarlægð/Seld - Eignin var 43 daga á skrá

Verð 61,9
Stærð 92
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 674
Skráð 4.5.2022
Fjarlægt 17.6.2022
Byggingarár 1985
mbl.is

Þórarinn Thorarensen löggiltur fasteignasali og Landmark fasteignamiðlun kynna í einkasölu:

Virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 91,9 fm. endaíbúð á 2. hæð.  í vel viðhöldnu fjölbýli.  Sameign afar snyrtileg, nýlega búið að skipta um teppi og mála.  2 rúmgóð svefnherbergi.  Baðherbergi endurnýjað fyrir nokkrum árum.  Í kjallara er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  Eignin getur verið laus fljótlega.

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 206-5557, nánar tiltekið eign merkt 01 0203, birt heildarstærð 91,9 fm. Þar af er íbúðin skráðir 78,8 fm. og sérgeymsla í sameign merkt 01 00-05 er skráð 13,1 fm. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasali s. 770-0309 eða th@landmark.is

Nánari lýsing:

Forstofa / Miðrými:  Parket á gólfi, fataskápur.
Stofa / Borðstofa:  Afar rúmgott með parket á gólfi, útgengt á suðursvalir.
Eldhús:  Falleg hvít innrétting.  Flísar á gólfi og milli skápa í eldhúsi.  Tengi fyrir uppþvottavél.  Góður borðkrókur við glugga.
Svefnherbergi:  2 rúmgóð herbergi, bæði með parket á gólfi, fataskápar í báðum.
Baðherbergi:  Flísar á gólfi.  Baðkar með sturtuaðstöðu og upphengt salerni, falleg innrétting.  Opnanlegur gluggi.
Í kjallara er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.




 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23