Rauðavað 13, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá

Verð 71,4
Stærð 104
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 683
Skráð 21.2.2024
Fjarlægt 8.3.2024
Byggingarár 2004
mbl.is

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsetta snyrtilega íbúð í Norðlingarholti. Einkar barnvæn staðsetning þar sem skóli og leikskóli eru í göngufæri. Rúmgóðar svalir með útsýni að Rauðhólum.
Sér stæði í bílageymslu og rúmgóð sameiginleg bíla þvottaaðstaða. 

Lýsing eignar:

Komið er inn í sameiginlegan teppalagðan stigagang. Sérinngangur er inn í íbúð frá sameiginlegum flísalögðum svölum innganga að íbúðum þaðan sem útsýni er að nærumhverfi. 
Forstofa rúmgóð flísalögð og með glugga.
Þvottahús er á vinstri hönd frá forstofu. Flísalagt gólf og með góðu hilluplássi og skápum. Gluggi er í þvottahúsi.
Innangengt er í geymslu íbúðar frá þvottahúsi, parketlagt rými með glugga sem í dag er nýtt sem svefnherbergi.
Eldhús parketlagt er fyrir miðju eignar, rúmgóð innrétting með neðri skúffum, og efri skápum að hluta. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur. Granít borðplata og veggir flísalagðir að hluta á vegg og á milli efri og neðri skápa. Útgengi er út á einkar rúmgóðar svalir frá Eldhúsi. 
Stofa/borðstofa samliggjandi rými parketlagt og bjart með útsýni að nærumhverfi og að Rauðhólum.
Svenherbergi á gangi rúmgott parketlagt og með skáp.
Baðherbergi er á milli svefnherbergis og hjónaherbergis, flísalagt gólf og veggir, upphengt salerni, sturtuklefi og handklæðaofn. Baðinnrétting með neðri skúffum, granítborðplötu og handlaug á borði. Efri skápur og spegill með innbyggðri lýsingu. 
Hjónaherbergi er í enda gangs, parketlagt, bjart og mjög rúmgott með tveimur fataskápum. Stór gluggi er í hjónaherbergi með útsýni að nærumhverfi.

Granít sólbekkir í stofu og herbergjum.
Harðparket á parketlögðum rýmum íbúðar frá Birgisson endurnýjað 2019.
Þak yfirfarið 2021.

Bílakjallari: Sér stæði íbúðar er í bílakjallara. Komið er að bílakjallara á sameiginlegri lóð húseigna. Bíla þvottaaðastaða fyrir íbúa hússins er í bílakjallara. Tenging er komin fyrir rafhleðslubox að hluta. Hilla og tveir skápar á vegg við bílastæði. Sameiginleg bílastæði á lóð við húseign.

Góð eign á eftisóttum stað í Norðlingaholti. 

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is 
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 













 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26