Hverfisgata 94, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá

Verð 56,0
Stærð 84
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 670
Skráð 8.5.2019
Fjarlægt 18.5.2019
Byggingarár 2018
mbl.is

RE/MAX Senter kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir á Barónstíg 6 og Hverfisgötu 94 - 96, 101 Reykjavík. 

Íbúð merkt 0301.  Vönduð og vel skipulögð tveggja herbergja 83,6 fm íbúð ásamt stæði í bílageymslu í glæsilegri nýbyggingu á besta stað í miðborg Reykjavíkur, stutt í alla helstu þjónustu.

Eldhús er opið með sérsmíðuðum innréttingum upp að lofti, öll tæki eru frá viðurkenndum aðila. Stofa er stór og björt með útgengt út á 6,5 fm vestursvalir og svalagang mót austri. Rúmgott svefnherbergi er með sérsmíðuðum fataskápum.  Baðherbergi með vönduðum tækjum, sérsmíðuðum innréttingum og þvottaaðstöðu. Í bílakjallara er sér 5,6 fm geymsla ásamt bílastæði sem fylgir. 

Anddyri er flísalagt (hálkufríar) með uppsettum mynddyrasíma, póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. 
Innkeyrsla að bílgeymslu verður sameiginleg með Hverfisgötu 92.

Myndir eru teknar í sýningaríbúð 0201 og sýna efnisval og frágang.  Í húsinu eru 38 íbúðir á 2.-5. hæð – tveggja til fimm herbergja. Stærðir eru frá 59 – 186 fermetrar.  ???????Íbúðirnar verða afhendar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar á gólfum.  Íbúðir eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi.  Á fyrstu hæð eru verslunar- og veitingarrými.  

Mikið hefur verið lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan suður garð. Sjá skilalýsingu og nánari upplýsingar á https://hverfis.is    

Nánari upplýsingar veita Guðrún Lilja Tryggvadóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í sima 867-1231 / gudrunlilja@remax.is, Gunnar Sverrir Harðarson lögg.fast. 862-2001 gunnar@remax.is og Ástþór Reynir lögg. fast. í síma 899-6753 arg@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21