Eskivellir 1, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 21 dag á skrá

Verð 69,9
Stærð 108
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 644
Skráð 8.6.2023
Fjarlægt 30.6.2023
Byggingarár 2006
mbl.is

LANDMARK fasteignamiðlun kynnir fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu að Eskivöllum 1 í Hafnarfirði. Vel staðsett með helstu þjónustu, skóla og leikskóla í næsta nágrenni. Tvennar svalir til suðurs og vesturs. 3 góð svefnherbergi. Snyrtilegur stigagangur. Útsýni. Geymsla innan íbúðar.

Smellið hér
fyrir söluyfirlit og frekari upplýsingar.

Birt stærð séreignar er 108,5 fm sem skiptist í íbúð 105,1 fm og geymslu í kjallara 3,4 fm en íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og hlutdeild í sameign og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa er með flísum á gólfi og útgengt út á rúmgóðar suðursvalir. 
Eldhús er með bakaraofn í vinnuhæð, keramik helluborð, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli efri og neðri skápa og flísar á gólfi.
Herbergin eru þrjú og eru öll með skápum og parket á gólfi. Í einu þeirra er útgengt út á vestursvalir með miklu útsýni.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari með sturtugleri, handklæðaofni og rúmgóðri innréttingu.
Þvottahús er innaf forstofu með tengi fyrir þvottavel og þurrkara, góðu vinnuborði og þvottasnúrum.
Geymsla innan íbúðar er rúmgóð með parketi og gluggalaus.  Hana er hægt að nýta sem vinnu- og eða skrifstofurými.
Geymsla í sameign í kjallara er 3,4 fm.
Bílastæði í upphituðum bílakjallara. Þvottaðstaða fyrir bíla er í bílakjallara.

Upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is og Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
----------------------------------------------------------

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26