Ránargata 14, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá
Verð |
74,9
|
Stærð |
82
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
911
|
Skráð |
28.3.2024 |
Fjarlægt |
5.4.2024 |
Byggingarár |
1929 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan Fold kynnir í einkasölu
Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, hordur@fold.is
Fallega og vel skipulagða 82,2 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í virðulegu húsi við Ránargötu 14 í Reykjavík.
Eignin er í góðu steinhúsi mjög miðsvæðis þar sem allt er í göngufæri.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 71,5 fm, sér geymsla í risi 7,5 fm og önnur sér geymsla í risi 3,2 fm, samtals 82,2 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Íbúðin er mjög björt með fallegum og reisulegum gluggum. Útsýni.Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur með neðri hæð, fallegur stigi upp á efri hæð þar sem íbúðin er.Stigapallur, með fallegum glugga.
Forstofa/gangur, Rúmgóð og björt stofa. Fallegir gluggar.Eldhús með viðarinnréttingu, ofn, helluborð og vifta, stæði fyrir uppþvottavél (notað fyrir þvottavél í dag).
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. Fallegt útsýni er til sjávar frá einu herberginu.
Baðherbergi er endurnýjað með fallegum flísum og sturtu.
Gólfefni íbúðarinnar er plankaparket og flísar.
Risið er sameiginlegt , en þar eru einnig
tvær sér geymslur sem tilheyra íbúðinni.Svefnherbergi með glugga hefur verið útbúið í risi úr einni geymslunni.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð hefur sitt stæði fyrir þvottavél.
Lóðin er sameiginleg eignarlóð.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og menningu.
Fold fasteignasala,
Sóltúni 20, 105 Reykjavík
s 552-1400
www.fold.is