Þykkvaflöt 5, 820

Fjarlægð/Seld - Eignin var 39 daga á skrá

Verð 69,9
Stærð 139
Tegund RaðPar
Verð per fm 503
Skráð 19.11.2023
Fjarlægt 29.12.2023
Byggingarár 2023
mbl.is

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu Þykkvaflöt 5B sem er nýtt 4ja herbergja parhús í grónu íbúðahverfi á Eyrarbakka.  Húsið er á einni hæð, klætt að utan með rauðu báruáli og aluzink járn er á þaki. Þakkantur klæddur með hvítri ál-klæðningu.  Íbúðin er er 139,1 fm að stærð, (íbúð 108,5 fm, bílskúr og geymsla 30,6 fm samtals 139,1 fm).   Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar. 

Nánari lýsing:
Húsið telur þrjú svefnherbergi öll með fataskápum, andyri með fataskáp, stofu- borðstofu og eldhúsi í opnu rými, gangur, baðherbergi og þvottahúsi en úr því er innangengt út í bílskúr.
Eldhúsinnrétting frá IKEA sprautulökkuð og heimilistæki frá BOSCH.  Innihurðir eru yfirfelldar, hvítlakkaðar án þröskulda.  Bílskúrsgólf er Epoxi málað.
Húsið er klætt að utan með rauðu báruáli og aluzink er á þaki.   Gluggar eru vandaðir, ál/tré gluggar.  Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynnt með svæðaskiptum gólfhita.  Lóð verður þökulögð og drenmöl í bílaplani.  Gert er ráð fyrir heitum potti í garði og ídráttarrör fyrir lagnir til staðar.
Virkilega spennandi  eign á fínum stað.  Sorpskýli er staðsett á bílaplani.

Nánari skilalýsing og upplýsingar á skrifstofu fasteignasölunnar.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18