Sunnusmári 18, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá
Verð |
59,9
|
Stærð |
67
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
898
|
Skráð |
5.12.2022 |
Fjarlægt |
9.12.2022 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
***SÝNUM SAMDÆGURS - PANTIÐ SKOÐUN Í SÍMA 767-0000***
Fasteignasalan TORG kynnir nýlega, fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sólpalli í miðbæ Kópavogs við Sunnusmára 18. Eignin er skráð 66,7 m² og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, anddyri og 4,4 m² geymsli í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is Nánari lýsing;Komið er inní fallegt anddyri fjölbýlishússins og þaðan gengið inní forstofu af jarðhæðinni.
Forstofan er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús og
stofa mynda alrými íbúðarinnar með fallegri hvítri innéttingu í blandi við eik. Innréttingin er með efri og neðri skápum og ljúflokunum á skúffum, innbyggð uppþvottavél fylgir ásamt ísskáp og frysti.
Úr stofu og eldhúsi er útgengt á
timburverönd með skjólveggjum.
Tvö
svefnherbergi, bæði með fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta af veggjum. Sturtuklefi beint af gólfi, handklæðaofn og upphengt salerni. Falleg hvít innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfhiti er á baði.
Geymsla er í sameign, 4,4 fm.
Fjölbýlishúsið er byggt árð 2019 og eru allar innréttingar ítalskar af vandaðri gerð frá fyrirtækimu Cubo Design (söluaðili Parki)
Húsið er viðhaldslétt, álklætt með ál-tré gluggum. GSM tengdur dyrasími.
Falleg og vel skipulögð íbúð í þessu nútímalega hverfi, sem er miðpunktur höfuðborgarsvæðisins.
Öll þjónusta í stuttu göngufæri, ásamt skólum, íþróttaaðstöðu og heilsugæslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is