Verð | 20,2 |
Stærð | 52 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 389 |
Skráð | 4.1.2016 |
Fjarlægt | 10.2.2016 |
Byggingarár | 1987 |
mbl.is |
*EIGNIN ER SELD OG Í FJÁRMÖGNUNARFERLI*
*ÍBÚÐ FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI * LAUS STRAX * INNANGENGT Í ÞJÓNUSTUSEL*
Eignatorg kynnir 2ja herb. 52 fm. íbúð á 1. hæð fyrir 60 ára og eldri, auk rúmgóðrar geymslu í kjallara. Suðvestursvalir snúa út í gróðursælan garð. Tvær geymslur. Íbúðin er laus strax. Snyrtileg sameign. Lyfta og húsvörður. Boðið er upp á þjónustu á vegum félags- og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur. Á jarðhæð er hárgreiðslustofa, setustofa, mötuneyti með verönd, föndur- og spilaherbergi. Fallegur garður og púttvöllur fyrir framan veröndina. Frábær staðsetning, þar sem stutt er í Laugardalinn, laugina, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@eignatorg.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?
Nánari lýsing: Komið er inn í gang með fataskáp. Stofa er með útgengt á suðvestursvalir. Eldhús er með ljósum hurðum í innréttingu, kantlímdum með beyki og Electrolux eldavél. Svefnherbergi er með fataskáp. Baðherbergi er með innréttingu, sturtu, tengi fyrir þvottavél, veggdúk og vinyldúk á gólfi. Geymsluherbergi með hillum er í íbúð, sem mögulegt væri að nota sem frístundaherbergi. Rúmgóð sérgeymsla er einnig í kjallara. Korkflísar eru á gólfum í gangi, stofu, svefnherbergi, geymslu og eldhúsi. Innihurðir og skápar eru spónlagðir með ljósum spæni. Sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara er í kjallara. Lyfta er í húsinu og einnig húsvörður. Sameign og lóð er vel viðhaldið.
Annað: Íbúðin er á vegum samtaka aldraðra. Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra og félagsgjald skv. gjaldskrá. Þjónustuselið í húsinu á og rekur Reykjavíkurborg. Svefnherbergi er án hurðar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð