Austurvegur 41A, 800
Fjarlægð/Seld - Eignin var 33 daga á skrá
Verð |
64,9
|
Stærð |
121
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
538
|
Skráð |
27.8.2021 |
Fjarlægt |
29.9.2021 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan Bær og Snorri Sigurfinnsson lgf kynna í einkasölu. Austurvegur 41A. Nýlegt lítið fjölbýlishús með 9 íbúðum fyrir 50 ára og eldri. Byggt 2019. Íbúðin er þriggja herbergja endaíbúð á þriðju hæð, 120,4 fm með geymslu. Yfirbyggðar suðursvalir. Stæði í bílakjallara fylgir með.
Eignin verður sýnt á opnu húsi þriðjudaginn 31 ágúst kl 17:00 - 17:30. Vinsamlega skráið ykkur í opið hús hjá fasteignasala.
Húsið er miðsvæðis á Selfossi og stutt í alla helstu þjónustu, s.s. verslanir, apótek og heilbrigðisþjónustu.Allur frágangur utan og innan húss er til fyrirmyndar og hafa húsin Austurvegi 39-41 hlotið viðurkenningu Sveitarfélagsins Árborgar sem fallegasta fjölbýlishúsið.
Íbúðin samanstendur af rúmgóðri
forstofu með fataskáp.
Eldhús og
stofa í opnu rými. Vegleg eldhúsinnrétting. Útgengt úr stofu á yfirbyggðar
suðursvalir. Vínilflísar á svalagólfi. Eitt
svefnherbergi með fataskáp og
hjónaherbergi með stórum fataskápum. Rúmgott flísalagt
baðherbergi með veglegri innréttingu, sturtu og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Á gólfum íbúðar er vandað harðparket. Sérsniðnar gardínur frá Vouge.
Stór sérgeymsla í kjallara með hillum fylgir íbúðinni og úr kjallara er innangengt í bílageymslu. Næg bílastæði framan við húsið.
Vönduð og vegleg íbúð á besta stað.Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@fasteignasalan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, 0,4 % fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.