Verð | 33,4 |
Stærð | 64 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 524 |
Skráð | 28.6.2019 |
Fjarlægt | 3.7.2019 |
Byggingarár | 1959 |
mbl.is |
Hol með fatahengi og þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar. Eldhús er með upprunalegri innréttingu sem lítur mjög vel út, vaskur og borðplata hafa verið endurnýjuð. Innst í eldhúsinu er borðkrókur með föstu borði og bekk sem fylgir með. Stofan er björt með gluggum á tvo vegu, útgengt er út á rúmgóðar svalir sem voru stækkaðar verulega við framkvæmdir fyrir um 10 árum. Svefnherbergi með góðum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt að hluta og með opnanlegum glugga. Gólfefni eru parket, dúkur og flot á baðherbergi.
Í kjallara er sér geymsla íbúðar og sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Þrjá hliðar hússins eru klæddar en svalahlið er múruð og þar hafa allar svalir verið stækkaðar. Skipt var á sama tíma um glugga er snúa út í garð (stofa , eldhús og svalahurð). Aðkoma að húsinu hefur einnig verið endurnýjuð á smekklegan hátt.
Til stendur að taka stigahúsið í gegn fljótlega, skipt verðum um teppi og málað en það verður greitt úr sjóðum húsfélagsins.
Virkilega falleg eign á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík
Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is