Dalbraut 18, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 21 dag á skrá

Verð 28,0
Stærð 52
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 538
Skráð 28.4.2021
Fjarlægt 19.5.2021
Byggingarár 1987
mbl.is


 

Eignin er seld,verið er í fjármögnun!!

Fasteignasalan STOFN og Benedikt Ólafsson s: 511 0900 kynna: Mjög góða og vel skipulagða 2ja herb. 52 fm. íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi.  Vandaðar yfirbyggðar svalir með parket-lektum á svalargólfi. Íbúðin er laus við kaupsamning. Íbúð merkt. 302, að Dalbraut 18, 105 Reykjavík.

Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri, Innangengt er frá jarðhæð í þjónustuselið, þar sem boðið er upp á þjónustu á vegum félags- og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur.  Í tengibyggingu á jarðhæð er m.a. hárgreiðslustofa, setustofa, mötuneyti með verönd, vinnustofa o.fl.  Fallegur sameiginlegur garður.
Frábær staðsetning, stutt í Laugardalinn, laugina, verslun og þjónustu
.


Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala. Pantið tíma fyrir skoðun í síma 511 0900, tölvupóstur bo@stofnfasteignir.is.

Nánari lýsing: 

Hol: Komið er inn í gang með fataskáp, parket á gólfi.
Stofa: Stofan er björt með glugga í tvær áttir, sameigninlegt rými með eldhúsi. Frá stofu er útgengt á góðar yfirbyggðar svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús: Eldhúsið er með nýrri eldhúsinnréttingu, nýjum blöndunartækjum, helluborði og bakarofn, borðkrókur. Nýlega er búið að flísaleggja gólfið í eldhúsi.  
Svefnherbergi:  Ágætis svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi
Baðherbergi:  Baðherbergið er með ágætis innréttingu, tengi fyrir þvottavél, sturta með steyptum botni, dúkur á veggjum og vinyldúkur á gólfi.
Geymsla: Innan íbúðar er góð geymsla með hillum, mögulegt væri að nota sem frístundaherbergi. 
Sérgeymsla: Innan sameignar er einnig sér geymsla.
Sameiginlegt þvottahús: Í kjallara er sameigninlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara. 
Gólfefni: Plast-parket er á gólfum í íbúðinni, nema á baðherbergi er dúkur og flísar á eldhúsi.
Lyfta er í húsinu og einnig sameiginlegur húsvörður fyrir Dalbraut 18 og 20. Sameiginleg setustofa er á hæðinni.
 
Sameign og lóð er vel viðhaldið. Dalbraut 18-20 er fimm hæða hús með 47 íbúðum.
Þjónustusel er í Dalbraut 18-20 sem Reykjavíkurborg á og rekur. 

ATH: Kaupandi greiðir árgjald til Samtaka aldraðra, samkvæmt gjaldskrá.  Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra, sem greiðist við kaupsamning.  Þjónustuselið í húsinu á og rekur Reykjavíkurborg. 
Kvöð:  Þær kvaðir eru á íbúðunum að þær verða ekki seldar né afhentar til afnota öðrum en þeim sem orðnir eru 60 ára og eru félagar í Samtökum aldraðra.
Félagar: Í samtökum aldraða, sem orðnir eru 67 ára og eldri hafa forgangsrétt.  Samtök aldraðra eiga forleigu- og forkaupsrétt að íbúðunum, sbr. eignaheimildir.

Kaupandi þarf að vera félagsmaður í Samtökum aldraðra. Þegar aðili gerist félagsmaður í Samtökum aldraðra skuldbindur hann/hún sig til að hlíta samþykktum Samtakanna, sem er að finna á heimasíðu þeirra aldradir.is:
Úrdráttur úr 12. gr. samþykkta Samtaka aldraðra, sem kaupandi þarf m.a. að undirgangast:  Sá, sem fengið hefur íbúð að tilhlutan félagsins, má ekki selja íbúðina nema stjórnin hafi áður hafnað forkaups­rétti af hálfu félagsins. 
Áform um sölu á íbúð skal tilkynna skriflega og sannanlega til félagsins.
Söluverð íbúðar má aldrei vera hærra en upphaflegt kostnaðarverð hennar, að teknu tilliti til vísitölu byggingar­kostnaðar og með hliðsjón af viðskeytingu, lagfæringu og ástands hennar samkvæmt mati matsmanns félagsins eða dómkvadds matsmanns/matsmanna. Stjórn félagsins setur nánari reglur um útreikning kostnaðarverðs íbúðar. Enginn getur eignast íbúð í húsum félagsins nema vera félagsmaður, greiða árgjöld til félagsins og fullnægja að öðru leyti þeim skilyrðum sem sett eru í samþykktum Samtaka aldraðra.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali 661-7788, tölvupóstur bo@stofnfasteignir.is.
Starfsmenn hjá STOFN Fasteignasölu hafa "Heilindi - Dugnað - Árangur að leiðarljósi."

"Þarft þú að selja? Ég bíð þér upp á frítt verðmat. "Við sjáum um ljósmyndun og drónamyndatökur á eigninni þinni" 
"Ef það er eitthvað sem ég get gert fyrir þig í sambandi við kaup eða sölu á fasteign þá er minn er heiðurinn að vera þinn og þinna fasteignasali.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21