Hverfisgata 33, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 165 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 466
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 12.10.2020
Fjarlægt 26.3.2021
Byggingarár 1965
mbl.is

Fasteignasala Reykjavíkur og Guðbjörg Helga lgf. kynna  Hverfisgötu 33, 101 Reykjavík
Einstaklega bjart skrifstofu- og atvinnuhúsnæði í hjarta Reykjavíkur með sérinngangi og lyftu. Húsnæðið er auðvelt er að aðlaga að reksti. Eignin er á þremur hæðum auk kjallara, alls 465,6 fm að stærð, tvær hæðir og svo hluti jarðhæðar og kjallara. Þar sem hluti af rishæð er undir súð er hún stærri en uppgefnir fermetrar. Húsið er steinsteypt og var klætt 1998 með loftræstri álklæðningu. Bílastæðahús er handan götunnar með nægum bílastæðum og því er gott aðgengi að eigninni. Húsið stendur á skilgreindu miðborgarsvæði M1C, sem er svæði með takmarkaðar miðborgarheimildir og götusvæði 17. Í gildi er deiliskipulag fyrir Skúlagötusvæði sem var staðfest árið 1986.
Fasteignamat 2020 er 144.600.000 kr.
Um er að ræða 62,37% eignarhluta í húsinu en einnig er til sölu hinn eignarhlutinn um þessar mundir og því EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ EIGNAST ALLT HÚSIÐ. 

SKOÐAÐU MYNDBAND AF UTANVERÐU HÚSINU MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing:
Jarðhæð: Gengið er inn um sérinngang. Þar er eitt herbergi með gluggum í tvær áttir og salerni með aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
2. hæð: Hæðin er í dag innréttuð sem skrifstofa en býður upp á ýmis tækifæri. Miðrýmið er opið og mjög bjart. Þar er eldhús með nýlegri hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgott fundarherbergi með gluggum í tvær áttir. Tvær rúmgóðar skrifstofur eru innréttaðar innst á hæðinni, önnur með glugga í tvær áttir og hin með einum. Einnig er á hæðinni salerni og tvær geymslur, önnur eldvarin. Svart steinteppi og eikarparket er á gólfi. Kerfisloft með hljóðeinangrun.
3. hæð: Hæðin er að hluta undir súð með kvistgluggum sem voru settir 1998. Stór salur með viðarparketi. Geymslurými með rennihurðum er meðfram einni hlið. Innbyggður glerskápur milli kvistglugga. Góðar flísalagðar suðursvalir götumegin. Eldhúsaðstaða er í öðru rými með viðarinnréttingu ásamt fundarborði. Svart steinteppi á gólfi. Tvö salerni með flísum á gólfi. Á ganginum er fatahengi, skápur með stálvaski og lítið seturými. 
Kjallari: Tvær læstar rúmgóðar geymslur án glugga, sameiginlegt lagnarými, ruslakompa og vörumóttaka.

Hverfisgatan er spennandi valkostur þar sem mikil uppbygging á sér stað. í næstu húsum er danska sendiráðið, Þjóðleikhúsið, ráðuneyti, Hæstiréttur ásamt fjölda verslana og þjónustuaðila. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 897 7712 og netfanginu gudbjorg@fr.is

Bókaðu skoðun og pantaðu söluyfirlit  með því að smella hér eða hafðu samband við Guðbjörgu Helgu í síma 897 7712.
Smelltu hér fyrir frítt söluverðmat án skuldbindingar á þinni fasteign.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28