Brúarfljót 18, 270

Verð 26,9
Stærð 51
Tegund Atv.
Verð per fm 525
Skráð 30.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2022
mbl.is 1258228

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 51,2 m2 geymsluhúsnæði við Brúarfljót 18E í Mosfellsbæ. Góð lofthæð. Tvær innkeyrsluhurðir og ein inngönguhurð. Svæðið er allt malbikað og verður afgirt með tveimur rafdrifnum hliðum. Tvö einkastæði á lóð fylgja. Hiti og rafmagn er sameiginlegt. Sameiginlegt salerni er á svæðinu. ** Laust strax **

Húsin eru byggð úr samlokueiningum úr steinull og stáli, steingráum að utan og hvítum að innan. Gólf eru steypt og slípuð. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum. Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð og upplýst. Svæðið verður afgirt og aðgangi stýrt í gegnum tvö rafdrifin hlið. Sameiginlegur salerniskjarni er á svæði. Nýting á sameiginlegum bílastæðum fylgja öllum bilum en bílastæði í séreign fylgja ákveðnum bilum, þá staðsett fyrir framan viðkomandi bil. Sameiginleg sorpílát auk rafhleðslustöðva fyrir bíla. Húsfélag hefur verið stofnað um eignina sem sér um allan sameiginlegan rekstur. Engin vsk-kvöð er á bilunum.

Verð kr. 26.900.000,-


 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13