Ásakór 13, 203
Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá
Verð |
65,9
|
Stærð |
107
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
617
|
Skráð |
28.8.2023 |
Fjarlægt |
8.9.2023 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög rúmgóð og falleg íbúð á 3ju hæð í góðu lyftuhúsi við Ásakór 13 í Kópavogi. Um er að ræða eign sem er 3ja herbergja og skráð 106,8fm og þar af er geymsla skráð 11,7fm. Íbúðin skiptist í stórt alrými með eldhúsi og stofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar og stóra forstofu. Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem stutt er í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.isNánari lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með gráum flísum á gólfi. Góður fataskápur með rennihurðum og hurð aðskilur forstofu frá aðalrými.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru í alrými. Stórir gluggar í stofu hleypa góðri birtu inn og óbyggt svæði er við húsið.
Eldhús: Í eldhúsinu er hvít falleg innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi. Plexigler er á milli efri og neðri skápa. Keramikhelluborð með háf yfir og tengi er fyrir uppþvottavél. Dökkar flísar eru á gólfi í eldhúsinu. Opið er yfir í stofurýmið frá eldhúsinu.
Stofa: stofan er mjög rúmgóð og björt og samliggjandi eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengt út á s/a svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Baðherbergið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar er með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. Hvít innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö. Bæði herbergin eru rúmgóð með parketi á gólfi og fallegum fataskápum með rennihurðum.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er innan íbúðar með hvítri innréttingu með vaski og flísum á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign sem er skráð 11,7fm. einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.
Niðurlag: þetta er virkilega björt og falleg íbúð í góðu lyftuhúsi með fallegu útsýni yfir Heiðmörkina og að Bláfjöllum. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is