Norðurbrú 6, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 24 daga á skrá
Verð |
77,9
|
Stærð |
108
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
723
|
Skráð |
6.11.2023 |
Fjarlægt |
1.12.2023 |
Byggingarár |
2004 |
mbl.is |
|
Borg fasteignasala ehf. (Einar Pálsson lgf. einar@fastborg.is; 857-8392) kynna bjarta vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð (íbúð 107) í góðu fjölbýli með lyftu og stóra verönd með sjávarútsýni að Norðurbrú 6, 210 Garðabæ. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðum bílakjallara ásamt sérgeymslu í kjallara hússins og sameiginlegri vagna/hjólageymslu. Frábær staðsetning í vinsælu hverfi - stutt í fallegar gönguleiðir.Húsið er 4 hæða steinsteypt fjölbýlishús með lyftu og bílakjallara, byggt árið 2004 af ÞG verk ehf. Eigninni fylgir bílastæði í lokuðum bílakjallara, stæði merkt 01 B13. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í kjallara hússins ásamt sérgeymslu (0043) alls 8,4 m2 að stærð. Íbúðin er 99,4 m2, samkvæmt skráningu HMS og verönd er 25,6 m2.
Lýsing eignar:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp
Svefnherbergis
gangur er í framhaldi af forstofu, með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru 3 talsins, öll með föstum fataskápum og parket á gólfi. Barnaherbergin eru 9 fermetrar og hjónaherbergi 12,4 fermetrar.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að mestum hluta, upp hengdu klósetti, innréttingu með ágætis skápaplássin skáp og flísar á vegg við spegill. Baðkar, sturta og handklæðaofn.
Eldhús er opið við stofu að hluta í rými sem er nokkuð rúmgott. Eldhúsinnrétting er með efri- og neðri skápum og flísum á milli skápa, parket er á gólfi. Stofan er með parket á gólfi.
Útgengt er á s
tóra verönd til vesturs úr stofu/eldhúsi með fallegu sjávarútsýni.
Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með vaski og flísum á gólfi.
Sér bílastæði fylgir íbúðinni í lokuðum
bílakjallara.Sérgeymsla er í kjallara hússins ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is
-Eignin er í einkasölu
-Ljósleiðari tengdur inn í íbúðSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.