Grettisgata 57, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
39,9
|
Stærð |
50
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
792
|
Skráð |
19.11.2020 |
Fjarlægt |
28.11.2020 |
Byggingarár |
1929 |
mbl.is |
|
PANTIÐ TÍMA Í VENNI@FASTLIND.IS EÐA 699-7372
Vernharð Þorleifsson lgf. og Lind kynna í einkasölu gullfallega, nýuppgerða þriggja herbergja risíbúð með kröftugan karakter, í góðu steinhúsi í miðborg Reykjavíkur.
Íbúðin er skráð 50,4 fermetrar en gólfflötur er um 60 fermetrar.
Frekari upplýsingar veitir Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala í síma 699-7372 eða venni@fastlind.is
Kíktu í heimsókn til mín á Facebook eða
á Instagram
Nánari lýsing:
Íbúðin er á þriðju hæð í þríbýli. Gengið er upp fallegan, upprunalegan timburstiga í sameign og þaðan inn í alrými íbúðarinnar sem er bjart og fallegt.
Alrými; stofa og borðstofa með eldhúsinnréttingu: Búið er að hækka loftið í þessu rými sem gerir mikið fyrir karakter íbúðarinnar. Gegnheil furuborð á gólfi, nýjar klæðningar á veggjum, ný eldhúsinnrétting. Gengið er inn í svefnherbergi og baðherbergi út frá alrými.
Svefnherbergi 1: Lakkað steingólf, nýr panell á veggjum.
Svefnherbergi 2: Flotað og lakkað gólf, nýr panell á veggjum.
Baðherbergi: Nýjar flísar á gólfi, nýtt baðkar og sturta, nýtt salerni og nýr vaskur. Nýjar flísar á vegg við baðkar og sturtu, nýr panell á öðrum veggjum. Þvottavélatengi.
Geymsluloft er yfir hluta íbúðar og sameiginleg geymsla í kjallara.
Núverandi eigandi hefur á síðastliðnum þremur árum tekið íbúðina algjörlega í gegn, þmt raflagnir, pípulagnir, innréttingar, hreinlætistæki og klæðningar.
Skipt var um glugga fyrir uþb 5 árum.
Skipt var um þak og rennur árið 2010.
Öll íbúðin er nýmáluð.
Vandað hefur verið til verka við allar endurbætur, sem skilar sér í afar fallegri og eigulegri fasteign.