Verð | 65,9 |
Stærð | 134 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 493 |
Skráð | 4.2.2021 |
Fjarlægt | 25.2.2021 |
Byggingarár | 1968 |
mbl.is |
Nánari lýsing:
Gólfefni: Nýtt parket er á stofum eldhúsi og svefnherbergjum. Einnig er nýtt teppi á stiga. Forstofa og baðherbergi er flísalagt.
Gengið er inn í íbúð af opnum svalagangi.
Komið er inn í litla flísalagða forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er falleg snyrting með lítilli ljósri innréttingu, upphengt salerni og handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Eldhús er með nýrri innréttingu opið inn í stofu / borðstofu. Falleg dökk U laga innrétting og fylgja innbyggð uppþvottavél og ísskápur ásamt vínkæli eigninni. Stór gluggi með opnanlegu fagi.
Eldhúsið er opið inn í rúmgóða og bjarta stofa með stóra glugga til suðurs. Innfelld lýsing er í stofum og eldhúsi. Úr stofu er stigi upp á efri hæð.
Á efri hæð er björt sjónvarpsstofa með útgengi út á rúmgóðar suður þaksvalir með frábæru útsýni. Baðherbergi er með lítilli innréttingu, flísalagt í hólf og gólf, tengt fyrir þvottavél, baðkar með sturtu, stór gluggi með opnalegu fagi.
Tvö svefnherbergi eru á efri hæð, annað mjög rúmgott með fallegum gólfsíðum glugga fataherbergi. Fallegt útsýni er úr báðum herbergjum.
Á svalargangi við íbúð er sér geymsla eignar. Í sameign er sameiginlegt þvottahús.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931- ohb@miklaborg.is