Straumhella 4, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 20 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 60
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 22.3.2024
Fjarlægt 12.4.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

**Afhending fljótlega** Verðtilboð!

Hraunhamar fasteignasala kynnir til nýtt og glæsilegt 59,9 fm geymslubil merkt 105 við Straumhellu 4 (rauða húsið) í Hafnarfirði.  Lóð skilast malbikuð og fullfrágengin. Húsnæðið skilast fullfrágengið með lokaúttekt samkvæmt skilalýsingu. Byggingin er í notkunarflokki 1 sem gildir um geymslur.


Nánari lýsing:
Burðarvirki útveggja, burðarsúlna og þaks er úr límtré og útveggir og þak úr yleiningum. Möguleiki er á að gera milliloft. Innkeyrsluhurð er Héðinshurð með gönguhurð. Sér rafmagnstafla er í hverju bili fyrir bæði eins og fasa og 3 fasa rafmagn.  Bilið er með hita í gólfi. Epoxý á gólfum. Snyrting er til staðar. 

Hiti er sameiginlegur og húsnæðið er EKKI með vsk.kvöð.

Þrívíddarmyndir gefa hugmynd um útlit en eru ekki endanlegar. Smíðateikningar gilda. 

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.


Allar nánari upplýsingar veita:
Helgi Jón Harðarsson sölustjóri í síma 893-2233 eða á netfanginu helgi@hraunhamar.is
Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 eða á netfanginu arsaell@hraunhamar.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5