Framnesvegur 10, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
49,9
|
Stærð |
92
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
544
|
Skráð |
4.12.2017 |
Fjarlægt |
12.12.2017 |
Byggingarár |
1929 |
mbl.is |
|
Heimili fasteignasala, s: 530-6500 kynnir til sölu bjarta og fallega 91,7 fm fjögurra til fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum við Framnesveg í vesturbæ Reykjavíkur.
Nánari lýsing: Gengið inn um sameiginlegan inngang inn í anddyri séreignar. Eignin er sem fyrr segir á tveimur hæðum þar sem neðri hæðin mælist 54,3 fm og sú efri 37,4 fm. Efri hæðin er að hluta til undir súð þ.a. nýtanlegir fermetrar á þeirri hæð eru fleiri en uppgefinn fermetrafjöldi segir til um. Neðri hæðin er með parketi á gólfum og geymir tvær stofur, gott eldhús og bað/þvottahús sem er með upphengdu salerni, góðum vaski, opnanlegu fagi og eldri, en heillegri, innréttingu. Á neðri hæð er parket á gólfum utan baðherbergis sem er með flísum á gólfi. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, eitt stærra og tvö minni, öll með parketi á gólfum og opnanlegum þakgluggum. Í stóra herberginu er mikil lofthæð, gott geymsluloft, og opnanlegir þakgluggar til austurs og vesturs. Á efri hæð er einnig gott baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf og geymir nýlega innréttingu, opnanlegt fag og baðkar með sturtuhaus.
Loks fylgir eigninni snyrtilegur sameiginlegur garður.
Falleg og vel skipulögð eign á góðum stað í vesturbænum þar sem stutt er í alla þjónustu.
Verð: 49,9M
Áhugasamir kaupendur eru velkomnir í opið hús nk. fimmtudag kl. 17:15 - 17:45.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfsl, brynjolfur@heimili.is, S: 896-2953