Nönnugata 14, 101

Verð 74,9
Stærð 78
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 959
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1983
mbl.is 1253013

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða 2ja til 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli í Þingholtunum. Nýlega búið að mála og skipta um teppi í snyrtilegri sameign. Stutt í skóla og leikskóla sem og alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat í eignina þína.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 78,1 fm

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum skáp og náttúrustein á gólfi sem flæðir inn í eldhús.
Herbergi/hol til hliðar við inngang með parket á gólfi. Væri hægt að gera að svefnherbergi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðar vestur svalir.
Borðstofa við eldhús með parket á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu og náttúrustein á gólfi. Nýlegt helluborð og ofn.
Svefnherrbergi er rúmgott með parket á gólfi og góða skápa.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari með sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni og náttúrusteinn á gólfi og við baðkar og flísar á vegg.

Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Þvottahús þar sem hver hefur sértengi fyrir þvottavél og þurrkara í sameign í kjallara.
Rúmgóð hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.

Miðbærinn, Hljómskálagarðurinn og öll helsta þjónusta í göngufæri.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is   Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28