Heildar byggingarmagn innan hverrar lóðar er allt að 600m2 og að hámarki sex hús á lóð. Á hverri lóð er heimilt að reisa eitt einbýlishús önnur hús mega vera gesta-/véla-/garð-/verkfærahús. Stöðuleyfi gáma er bannað að fráskyldu eins árs leyfi vegna nýframkvæmda. Atvinnustarfsemi sem er líkleg til að valda hvers konar ónæði, s.s. mengun eða hávaða á skipulagssvæðinu er ekki heimil. Gæludýrahald og minniháttar dýrahald er heimilt á lóðum. Ekki er gert ráð fyrir búrekstri á deiliskipulagssvæðinu.
Stutt er í alla þjónustu á Hellu eða Hvolsvelli. Matvöruverslanir, sundlaugar, læknisþjónusta, vínbúð, byggingavöruverslanir og veitingastaðir. Hella er 14 km frá og Hvolsvöllur er 11 km frá Litla Hofi.
Golfvöllur er á Strönd, 8 km frá Litla Hofi.
Helstu náttúruperlur sem eru nálægar eru til að mynda Fjallabak, Hekla, Tindfjallajökull, Þórsmörk o.fl.
Lóðirnar eru stórar og þar af leiðandi er byggingarmagn mikið. Byggingarleyfi fæst í samráði við viðkomandi sveitarfélag.
Seljandi skilar vegi, köldu vatni, rafmagni og ljósleiðarararöri að lóðamörkum.
Nánari upplýsingar veitir: Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is