Lyngás 1, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
94,9
|
Stærð |
125
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
759
|
Skráð |
31.10.2023 |
Fjarlægt |
10.11.2023 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og björt fimm herbergja endaíbúð í lyftuhúsi við Lyngás 1H. Eignin er skráð 125 fm og skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu/borðstofu, anddyri og geymslu í kjallara. Frá stofu er gengið út á 6,6 fm svalir til suð-vesturs. Sérmerkt bílastæði í bílastæðakjallara fylgir eigninni. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is Nánari lýsing: Gengið er inn í anddyri með fataskápum. Frá anddyri er gengið inn á svefnherbergisgang en samtals eru fjögur rúmgóð svefnherbergi sem öll eru með innbyggðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari / sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn í fallegri innréttingu inn á baði. Eldhúsið er með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og veggháf. Hægt er að sitja við eldhúsinnréttinguna. Stofan / borðstofan er nokkuð rúmgóð og er með útsýni út í bakgarð með leiktækjum. Gengið er frá stofu út á 6,6 fm svalir til suð-vesturs. Í kjallaranum er rúmgóð geymsla sem fylgir eigninni ásamt sérmerktu bílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Lyfta er í húsinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is