Langimelur 18, 276

Verð 10,5
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 18.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár
mbl.is 1252187

Remax kynnir til sölu einstaklega fallega lóð í Hvammsvík:  Lóð sem staðsett er í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar.  Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 30-45 mín. fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni og nýju sjóböðunum.  Mikið fuglalíf er á svæðinu og hefur jörðin mikla sögu allt frá landnámsöld.   Lóð nr. 18 er einstaklega vel staðsett, með útsýni út að sjó og litlum læk sem rennur í gegnum hana. Hún er um 0,54 ha. að stærð og hámarks byggingarmagn 3% af lóðarstærð eða um 150 fm.  

Seljandi skoðar að setja lóðina upp í sumarbústað í 30-60 mínútna fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.  

Kjósarveitur leggja hitaveitu ásamt ljósleiðara og RARIK rafmagn að lóðarmörkum. Landeigandi hefur séð til þess að veituskurður meðfram vegi er til staðar þar til gengið hefur verið frá öllum lögnum í skurðinn en heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara nýta skurðinn.  Landeigandi mun setja upp hlið og girða af svæðið meðfram þjóðveginum í gegnum land Hvammsvíkur. Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá hliði.

Kaupandi er upplýstur um að hann semur sjálfur um tengigjöld og notkun við RARIK vegna rafmagns og Kjósarveitur vegna heits vatns og ljósleiðara. Landeigandi leggur kalt vatn að lóðarmörkum án innheimtu tengigjalds en kaupandi greiðir landeiganda fyrir kalt vatn kr. 30.000 á ári frá 1. janúar 2023. Vatnsgjaldið hækkar í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2024.
Kaupandi er upplýstur um að hann beri ábyrgð á lagningu allra lagna inni á sinni lóð.  Kaupandi er jafnframt upplýstur um að samkvæmt deiliskipulagi skulu frístundarhúsin að jafnaði vera á einni hæð en með nýtanlegu risi og er hámarks byggingarmagn á hverri lóð 3% eða um 162 fm.  Áhersla er á vönduð hús sem mynda heildstæða mynd og falla vel að umhverfinu. Lóðareigandi ber sjálfur ábyrgð á að leggja innkeyrslu / bílastæði frá lóðamörkum  að sínu húsi.

Fráveita er á ábyrgð lóðareiganda í samræmi við leiðbeiningar um gerð og frágang rotþróa í sveitarfélaginu.  Framræsla er jafnframt á ábyrgð lóðareiganda.                               
Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og verður þinglýst kvöð þess efnis.
Kaupandi skuldbindur sig til að klára byggingu húsa eigi síðar en tveimur árum eftir undirritun kaupsamnings og afhendingu eignar.
Kaupandi er upplýstur um að hann ásamt öðrum eigendum frístundahúsa á svæðinu eða félag á þeirra vegum sjái um viðhald og rekstur hliðs og vegar.
Kaupandi er upplýstur um að hann greiðir öll opinber gjöld og tryggingar vegna eignarinnar og árgjald í sumarhúsafélag þegar/ef það verður lagt á.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 og netfang gudrunlilja@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.  4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14