Skólavörðustígur 6B, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 24 daga á skrá
Verð |
44,9
|
Stærð |
84
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
532
|
Skráð |
20.8.2018 |
Fjarlægt |
13.9.2018 |
Byggingarár |
1986 |
mbl.is |
|
Borg Fasteignsala s. 519-5500 kynnir bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð í steyptu húsi frá 1986 í hjarta miðborgarinnar með tvennum svölum og flottu útsýni.
LAUS VIÐ KAUPSAMNING.
Húsið stendur baka til við Skólavörðustíg en aðkoma er frá bílastæðum við Hallveigarstíg og frá Skólavörðustíg (milli húsa). Stendur húsið í nokkuð góðu skjóli frá miðbænum og gangandi og akandi umferð en algjörlega miðsvæðis. Íbúðin sjálf sem er á 3ju hæð í litlu fjölbýlishúsi.
Nánari lýsing; Komið er inn í forstofu með fataskápum og þaðan áfram inn í opið alrými.
Stofa og eldhús eru í opnu alrými með glugum á tvo vegu, gengið er út á flísalagðar svalir sem snúa mót s-vestri úr alrými. Stofan er ágætlega rúmgóð fyrir bæði setustofu og borðstofu.
Eldhús er með fallegri viðarinnréttingju, eyju sem snýr út að stofunni sem hægt er að sytja við.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, hjónaherbergi skápum með rennihurðum með speglum sem bæði nýta plássið vel og stækka rýmið. Gengið er út á svalir sem snúa mót suðri úr hjónaherbergi.
Auka herbergi er einnig ágætt að stærð, þar er ekki fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með upphengdri sturtu og hvítri innréttingu.
Húsið er skipulagt blandað, atvinnuhúsnæði, lögfræðistofa og ljósymdanri á 2. hæð en sér inngangur á verslun/þjónustu frá jarðhæð.
Sameign er snyrtileg, sameiginlegt þvottahús á jarðhæð og geymslur en íbúðinni fylgir sérgeymsla.
Þetta er notaleg og miðborgar íbúð – vel staðsett með tilliti til nálægðar við verslun, lágvöruverslun, þjónustu, veitingastaði og kaffihús.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra í s. 777-2882 eða thora@fastborg.is