Gullsmári 9, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 33 daga á skrá

Verð 35,4
Stærð 49
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 718
Skráð 10.7.2020
Fjarlægt 12.8.2020
Byggingarár 1996
mbl.is

Þessi eign er seld með fyrirvara um fjármögnun

Fasteignasalan Þingholt kynnir í einkasölu fallega 60+ íbúð á fyrstu hæð, í Gullsmára 9, 201 Kópavogi.  

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð með tengingu við þjónustukjarna félags eldri borgara. þar sem hægt er að fá heitan mat, líflegt félagslíf ásamt því að þar er starfrækt snyrti- og hárgreislustofa.

Eignin er laus við kaupsamning

Eignin skiptist í hol, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi/þvottahús og sér geymslu í kjallara. 

Lýsing:  Íbúðin er björt og rúmgóð var öll máluð s.l. ár
Eldhús: góð innrétting, parket á gólfi og borðkrókur með góðum glugga. Stofan er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott með eikarskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi: er með sturtu klósetti, vask, skápum, spegli og tengi fyrir þvottavél
Sérgeymsla er í kjallara.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Þingholt fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Sigurðardóttir , í síma 773-7617, tölvupóstur sigrun@tingholt.is.








 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14