Jöfursbás 7A, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 132,9
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.023
Skráð 30.9.2022
Fjarlægt 14.10.2022
Byggingarár 2022
mbl.is

***DOMUSNOVA KYNNIR * ÞAKÍBÚÐ VIÐ HAFIÐ***
Jöfursbás 7a, Reykjavík - íbúð 0502.
  4ra herbergja endaíbúð íbúð 129,9fm. á fimmtu hæð (efstu), þar af geymsla 9,8fm. (merkt 0009) í kjallara og stæði merkt B013 í lokuðum upphituðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum og stóru eldhúsi og stofu.  Þaksvalir snúa til sjávar um 100fm. út frá stofu og svalir til suðurs.
Íbúðin nýtur mjög mikils útsýnis til allra átta og yfir hafið, til Esjunnar, Viðeyjar o.fl.


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Lýsing íbúðar:
Forstofa með innbyggðum fataskáp 
Eldhús rúmgott með eyju og vandaðri innréttingu sem nær til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.  Gluggi í eldhúsi til alusturs sem hleypir mikilli birtu inn í rýmið.
Stofa með góðum glugga og útgengi á um 100 fm þaksvalir en einnig er útgengt á suðursvalir.  Tengt fyrir heitum potti á þaksvölum.
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.   Innaf baðherbergi er þvottaherbergi með innréttingu.
Hjónaherbergi mjög stórt með skápum til lofts.  Baðherbergi innaf hjónaherbergi og svalir til suðurs.
Svefnherbergi # 2 er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts og útgengi á þaksvalir.
Svefnherbergi # 3 er mögulegt í stað sjónvarpsherbergis.  Útgengt á þaksvalir.
Þaksvalir um 100fm. með tengingu fyrir heitum potti.  Glæsilegt útsýni til allra átta.
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 

Íbúðirnar í húsinu eru mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 51 fm-138 fm. Bílastæði fylgir mörgum íbúðum og næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


Sýnum alla daga, hafið samband við: 
Kristín Einarsdóttir lgfs., s. 894-3003 eða kristin@domusnova.is 
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða oc@domusnova.is
Snorri Björn Sturluson lgfs., s. 699-4407 eða snorri@domusnova.is
Vera Sigurðasrdóttir lgfs., s. 866-1110 eða vera@domusnova.is
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
Björgvin Þór Rúnarsson lgfs., s. 855-1544 eða bjorgvin@domusnova.is
Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgfs., s. 665-8909 eða go@domusnova.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða ingunn@domusnova.is

NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn.  Í íbúðum þar sem er eyja eru viftur af gerðinni AEG Airvorce-eyjuháfur Luna, hvítur.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe. 
Íbúðirnar afhendast með vönduðu harðparketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON. 
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Fyrstu íbúðir eru til afhendingar í febrúar/mars 2023.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Samtals eru 29 íbúðir í húsinu, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 51 fm-138 fm. Bílastæði fylgir mörgum íbúðum og næg stæði fyrir utan hús.
ar um viðhald og einstaka framkvæmdir.g einstaka framkvæmdir.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28