Bjarkarholt 10, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 265 daga á skrá

Verð 63,9
Stærð 123
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 518
Skráð 14.6.2019
Fjarlægt 5.3.2020
Byggingarár 2019
mbl.is

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandaðar íbúðir fyrir 50 ára og eldri í fjórum glæsilegum 3ja – 5 hæða nýbyggingum við Bjarkarholt í miðbæ Mosfellsbæjar „Kaupfélagsreitnum“.  Hverri íbúð fylgir sér bílastæði í bílakjallara með aðstöðu fyrir hleðslu rafbíla.
 
Húsin eru hönnuð af ASK arkitektum og Landhönnun sér um hönnun lóða og umhverfis þar sem stuðlað er að „grænni“ ásýnd hverfisins. 
 
Byggingaraðili húsanna er GG Verk, sem eru mjög vandaðir byggingaraðilar með áratuga reynslu. 
 
Eignirnar eru frábærlega staðsettar í rótgrónu hverfi í miðbæ Mosfellsbæjar þaðan sem stutt er í alla þjónustu og allir innviðir eru þegar til staðar. Stutt er í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði auk þess sem stutt er út á aðalbraut.
 
Frá stórum hluta íbúðanna nýtur virkilega fallegs útsýnis og mögulegt verður að setja glerlokun á svalir nánast allra íbúða.  Vélrænt inn- og útsog er í alrýmum, baðherbergjum og þvottaherbergjum í öllum íbúðum nema 2ja herbergja þar sem eru ferskloftsinntök í stofum og svefnherbergjum.
 
Um er að ræða 123,3 fermetra (þar af 11,1 fm geymsla) 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með suður svölum sem skiptist í: Anddyri, baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottaherbergi, barnaherbergi og hjónaherbergi.
 
Sjá nánar á söluvef: 
https://www.ggverk.is/til-solu/bjarkarholt

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4