Austurvegur 26, 630
Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá
Verð |
65,0
|
Stærð |
154
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
421
|
Skráð |
22.5.2022 |
Fjarlægt |
3.6.2022 |
Byggingarár |
1933 |
mbl.is |
|
Falleg eign á sjávarlóð á suðurenda Hríseyjar í Eyjafirði.
Eignin skiptist þannig að íbúaðarhúsið er skráð 105,5 m² að stærð, frístundahús eða vinnustofa er skráð 49 m² og geymsla tæpir 40 m². Nánari lýsingÍbúðarhúsið er timburhús á tveimur hæðum byggt árið 1933. Húsið lítur vel út að utan og hefur verið mikið tekið í gegn á síðustur tveimur áratugum.
Efri hæð skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofu.
Neðri hæð skiptist í borðstofu, þvottarými, eldhús og eitt herbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt og þar er snyrtileg innrétting og sturtuhorn, opnanlegur gluggi.
Stofan er með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö á efri hæð og eitt á neðri. Fataskápar eru í öllum herbergjum og parket er á gólfi herbergja efri hæðar og flísar á herbergi neðri hæðar.
Eldhúsið er flísalagt og þar er snyrtileg sérsmíðuð viðarinnrétting með flísum á milli skápa. Útgangur er út á pall til suðurs úr eldhúsi.
Borðstofan er rúmgóð, flísalögð og með föstum bekkjum við vegg.
Annað- Gólfhiti er í allri neðri hæðinni.
- Á síðustu 20 árum hefur verið skipt um allar vatns og raflagnir sem og allar innréttingar og gólfefni.
- Þak var yfirfarið árið 2021 m.a. sett á nýtt þakefni.
Gestahús / vinnustofa stendur á lóðinni. Timburhús á steyptum grunni sem byggt var árið 2003 sem vinnustofa en gæti einnig notast sem gestahús. Húsið er eitt opið rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum til suðurs. Baðherbergi er í húsinu með sturtu.
Gólf er flotað og málað og skemmtilegt útsýni er úr húsinu.
Um 40 m² upphituð og einangruð geymsla er svo á lóðinni og þar er steyptur útveggur og steypt flísalagt gólf. Geymslan er frekar löng og mjó en nýtist núna sem vinnurými, geymsla og líkamsrækt.
Lóðin er mjög skemmtileg og allt í kringum húsið eru pallar og þar er m.a. grillhýsi. Garðurinn opinn mót suðri og niður í fjöru en með skjólgirðingar til austurs og vesturs. Gámur er grafinn undir pallinn og þar er jafnframt ágætt geymslurými. Gámurinn er einangraður og með rafmagni, um 12 m² að stærð.
Hér er um að ræða skemmtilega eign í einstakri náttúruperlu.