Kirkjusandur 101, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 39 daga á skrá

Verð 48,9
Stærð 96
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 508
Skráð 30.7.2019
Fjarlægt 7.9.2019
Byggingarár 1996
mbl.is

Miklaborg og Jórunn löggiltur fasteignasali kynna: Kirkjusand 3, glæsileg og björt 2ja - 3ja herbergja endaíbúð í lyftuhúsi á fyrstu hæð; skráð 96;2 FM á þessum vinsæla stað örskammt frá strandlengjunni og Laugardalnum. Íbúðin er fallega innréttuð, heildrænt útlit. Í íbúðinni er garðstofa sem er lokuð og upphituð með rennihurð út í garð. Samkvæmt eignaskiptasamningi er stór sérafnotaréttur íbúðar á lóð. Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri bílgeymslu merkt nr 20 stærð 25,3 fm. Í sameign fylgir íbúð húsvarðar við Kirkjusand 1 sem er í sameign allra í Kirkjusandi 1-5. Mikið og góð sameign, líkamsræktarsalur, auka geymsla sem ekki er skráð í fermetrum, hól-/vagnageymslu. Samræmt heildar yfirbragð íbúðar. Sameign mjög snyrtileg. Nálægð við Laugardalinn og miðbæinn gerir staðsetninguna einstaka. Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is

Kirkjusandur 1-5 er fjórir matshlutar og stendur á leigulóð. Kirkjusandur 3 er steinsteypt fjölbýlishús, fimm hæðir, kjallari og hýsir 16. íbúðir. Bílakjallari er sameiginlegur með Kirkjusandi 1 og 5 og er innangengt úr kjallara hússins. Tveir sameiginlegir inngangar í lyftuhúsið.

Nánari lýsing á íbúð: Komið er inn í opna og rúmgóða forstofu með sérlega góðu skápaplássi.  Úr forstofu er hol sem leiðir þið í allar vistaverur íbúðar. Beint af augum er eldhús  með glugga og  góðu skápaplássi. Samliggjandi við borðstofuna er stofa, í opnu rými með eldhúsi. Úr borðstofu er gengið inn í garðskála með rennihurð út í garð. Garðskálinn er upphitaður og nýtist því sem viðbót við íbúðina. Úr garðstofu er útgengt út á grasflöt sem er með sérafnotarétt. 

Baðherbergið er flísalagt með innréttingu og sturtuklefa. Á baði er góð snyrtiaðstaða skápur undir handlaug og spegill fyrir ofan með ljósakappa. Möguleiki á að tengja þvottavél á baði sem smá tilfæringum. í íbúð er einnig geymsla sem er í holi.

Eigninni fylgir 6,6 fm geymsla í kjallara sem er inni í íbúðarfermetrum. Einnig  fylgir stæði í bílageymslu.

Gólfefni: á íbúðinni er ljóst parket nema á baði sem er flísalagt. 

Sameignin er mjög snyrtileg og vegleg aðkoma er að húsinu. Á lóð eru bekkir og púttvöllur.

Staðsetning: Mjög vel staðsett íbúð með sérafnotafleti miðsvæðis í Reykjavík þar sem bílastæð í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir     lögaðila 2. Þinglýsingagjald af  kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 - 81 þúsund.          4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

 

 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14