Húnabraut 14, 540

Fjarlægð/Seld - Eignin var 62 daga á skrá

Verð 25,0
Stærð 145
Tegund Einbýli
Verð per fm 173
Skráð 10.2.2021
Fjarlægt 13.4.2021
Byggingarár 1957
mbl.is

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Fallegt og vinalegt 104,2 fm einbýlishús ásamt 40,5 fm. sérstæðum bílskúr alls 144.7 fm á góðum stað við Húnabraut 14, 580 Blönduósi.  Húsið stendur á 750 fm leigulóð í hjarta Blönduóss.
Nánari lýsing:
Komið er inn fá bílastæði inn í litla forstofu. Úr forstofu er innangengt inn í rúmgott forstofuherbergi ásamt stigagangi upp í lítið manngengt ris með tveimur litlum herbergjum ásamt geymslulofti.
Úr forstofu er komið inn á gang með lítill geymslu. Rúmgott hjónaherbergi með skáp. Þvottahús með útgengi út garð. Eldhús með eldri ljósmálaðri innréttingu, litlu búri ásamt borðkrók. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu. Rúmgóð stofa / borðstofa. Á gólfum íbúðar er plastparket á gangi, hjónaherbergi og forstofuherbergi, teppi á stofu / borðstofu og risi, flísar á baðherbergi og dúkur á eldhúsi. Húsið er allt klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Rúmgott malarplan fyrir framan bílskúr. Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning. Í allra næsta nágreni er grunn- og leikskóli, verslun og sundlaug ásamt annarri íþróttastarfsemi.

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) allt að 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15