Nesvegur 41, 107
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
83,9
|
Stærð |
132
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
635
|
Skráð |
29.9.2022 |
Fjarlægt |
14.10.2022 |
Byggingarár |
1989 |
mbl.is |
|
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu bjarta, rúmgóða og vel skipulagða þriggja til fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð (gengið upp 1/2 hæð) með stórum svölum, sólskála og stæði í lokaðri bílageymslu á Nesvegi 41 í 107 Reykjavík! Íbúðarrými eignar er skráð 118,2 fm og skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, borð- og setustofu. Frá borðstofu er gengið út í ca. 14 fm. sólskála og þaðan út á rúmgóðar og skjólríkar suður svalir. Þá fylgir eign stæði í lokaðri bílgeymslu, sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla. ATH! Eignin getur verið laus við undirritun kaupsamnings!
Nánari upplýsingar um eignina og bókanir í skoðun veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Nánari lýsing:
Sameign: rúmgóður og bjart stigahús sem hefur nýlega verið teppalagt.
Anddyri: parket á gólfi og ágætur fataskápur
Eldhús: stór
innrétting með góðri vinnuaðstöðu og miklu skápaplássi.
Borð- og setustofa: í sameiginlegu opnu rými með eldhúsi. Gluggar á tvo vegu, parket á gólfi og frá borðstofu er gengt út í sólstofu eignar.
Sólstofa: flísar á gólfi, aukin lofthæð að hluta til, útsýni til sjávar og útgengi á rúmgóðar og skjólríkar svalir sem snúa til suðurs.
Hjónaherbergi: parket á gólfi, góðir fataskápar innan herbergis.
Svefnherbergi: parket á gólfi og laus fataskápur í herbergi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og á veggjum, eldri en heilleg innrétting. Á baðherbergi er baðkar, sér sturtuklefi og gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús: er
inn af baðherbergi, ágæt vinnuaðstaða og á gólfi og á veggjum eru flísar.
Í kjallara húseignar er síðan sér geymsla íbúðar og sér stæði (B005) í lokaðri bílageymslu.
Árið 2017 var þak húseignar endurnýjað (járn, pappi og timbur eftir þörfum) og árið 2021 var húsið múrviðgert og málað, flasningar endurnýjaðar sem og þakkantur, gluggar og svalahurðir þar sem talin var þörf á, svalagólf löguð og stigahús málað. Árið 2022 var stigagangur síðan teppalagður og gluggakerfi í stigahúsi endurnýjað.
Falleg og vel skipulögð eign í Vesturbænum þar sem stutt er í alla þjónustu og Ægissíðan handan við hornið.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is.