Efri-Þverá 0, 531

Fjarlægð/Seld - Eignin var 23 daga á skrá

Verð 73,9
Stærð 345
Tegund Einbýli
Verð per fm 214
Skráð 8.1.2024
Fjarlægt 1.2.2024
Byggingarár 1968
mbl.is

HÚS fasteignasala og Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali s: 8931984 kynna í sölu jörðina Efri-Þverá II í Vestur-Húnavatnssýslu. Á jörðinni er íbúðarhús og hesthús ásamt bílskúr/vélaskemmu. Landið er 72 hektarar í séreign og svo er óskipt land, sem talið er  að sé um 1600 hektarar, sem deilist með tveimur öðrum nágranna jörðum. Einstaklega skemmtileg staðsetning með tilliti til útsýnis og náttúru. Frábært tækifæri til að kaupa jörð sem hægt er að byggja upp, annaðhvort sem frístunda stað eða til að stunda þarna sína atvinnu.

Eigendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu og suðurlandi.


Íbúðarhús: 187,5 fm á tveimur hæðum.
Sjarmerandi steypt hús sem byggt var árið 1968 og viðbygging byggð árið 1994. Húsið er með rúmgóðu eldhúsi (með frábæru útsýni út um eldhúsgluggann), inn af eldhúsi er búr. Stofan er rúmgóð og opin. 5 svefnherbergi eru í húsinu ásamt baðherbergi sem er nýbúið að endurnýja. Í viðbyggingunni er þvottahús og kjallari. Útgengi er úr þvottahúsinu. Í kjallaranum er sánaklefi. Húsið hefur verið mikið endurnýjað, þar á meðal hefur það verið einangrað og klætt að utan og skipt um útidyrahurðar. Járn á þaki hefur verið endurnýjað. Húsið er mikið endurnýjað að innan, meðal annars neysluvatnslagnir, gólf- og loftaefni að stórum hluta og led ljós eru í öllum rýmum. Ljósleiðari er kominn inn í hús og þriggja fasa rafmagn er komið í töflu.

Hesthús
Hesthúsið er 384,5 fm og byggt árið 1985, haughús er undir hluta þess. Hesthúsið er innréttað með eins- og tveggja hesta stíum. Nokkrar eins hesta stíur eru ætlaðar fyrir stóðhesta. Eik er í innréttingum. Húsið býður upp á mikla möguleika til endurbóta. Gerði er við húsið og einnig er beitarhólf fyrir framan.   

Bílskúr/vélaskemma
Byggt árið 1988 og er með tveimur innkeyrsluhurðum. Þessi bygging er ekki einangruð.

Við hesthúsið er tengd bygging sem ekki tilheyrir þessari jörð (tilheyrir nágrannajörðinni).
 
Jörð sem býður upp á mikla möguleika út frá staðsetningu og náttúrufegurð. Töluverð rjúpnaveiði er á svæðinu. 

Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá Jens Magnúsi Jakobssyni lgf s. 8931984 eða magnus@husfasteign.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, 0,4 % fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS Fsteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50