Lækjarbrekka 11, 801
Fjarlægð/Seld - Eignin var 44 daga á skrá
Verð |
32,9
|
Stærð |
97
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
338
|
Skráð |
18.11.2019 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
Fasteignaland kynnir:
Lækjarbrekka, Syðri-Brú, 801 Grímsnes-og Grafningshreppi. Hitaveita, heitur pottur. Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið),
Fasteignaland kynnir: Fullbúið sumarhús sem stendur á 5,125 fm eignarlóð í landi Syðri Brúar í Grímsnes-og Grafningshreppi. Húsið er srkáð 97.2 fm að stærð, en er um 110 fm að gólffleti. Um er ræða bjálkahús sem er búið að einangra að utan með tveggja tommu einangrun og klæða með bandsöguðu efni og var þeim framkvæmdum lokið í júlí 2018. Um er ræða glæsilegt hús á skipulögðu sumarhúsasvæði. Húsið er með steyptri plötu með hitalögn í. Skynjarar (stýring fyrir hita) er í herbergjum.
Húsið skiptist; Forstofa með flísum á gólfi og góðu fatahengi. Baðherbergi með flísum á gólfi, fallegri svarbrúnni innréttingu og sturtuklefa. Tvö góð herbergi með parketi á gólfi, annað með góðu skápaplássi. Herbergisgangur er með parketi á gólfi. Stofan er með parketi á gólfi, góðri lofthæð með útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með parketi á gólfi, fallegri viðarinnréttingu, sambyggðri eldavél með helluborði og uppþvottavél.
Milliloft: Gengið er upp parketlagðan stiga. Milliloft er með parketi á gólfi og opnanlegu fagi.
Af sólpalli er gengið inn í geymslu/þvottahús þar sem inntök hússins eru.
Stór sólpallur er við húsið með girðingu og skjólgirðingu.
Búið er að leggja drenlögn um hluta lóðarinnar og setja niður talsvert af trjám.
Geymsluskúr: Ca. 7 fm.
Fallegt útsýni er frá lóðinni. Steypt plata með hitalögn í. Hitaveita, heitur pottur, stór sólpallur. Lokað svæði (símahlið).
Árgjald er 30.000 kr. sem fer í viðhald á vegi og hliði á svæðinu.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Hilmar Jónasson, löggiltur fasteignasali s. 695-9500 netfang: hilmar@fasteignaland.is