Höfðabakki 9, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 106 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 452
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 6.9.2019
Fjarlægt 21.12.2019
Byggingarár None
mbl.is

Til leigu hjá Reitum: Bjart húsnæði á 1. hæð með góðu aðgengi

Bjart rými á jarðhæð sem getur hentað sem skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði eða þjónustuhúsnæði. Það er með stórum gluggum sem ná niður í gólf, loft eru með endurnýjaðri klæðningu og vandaðri innbyggðri lýsingu. Gólf eru með snyrtilegum gráum flísum. Rýmið er að mestu opið og tilbúið til notkunar fyrir nýjan leigutaka. Í rýminu eru salerni og aðstaða fyrir kaffistofu (lagnir til staðar en skápa vantar). Mögulegt er að Reitir breyti rýminu þannig að það henti nýrri starfsemi. Í kjallara er tæplega 35 fermetra geymsluherbergi sem inniheldur loftræstibúnað en herbergið nýtist einnig vel sem geymsla.

Í húsinu er til leigu: 

1. hæð: Suðurhelmingur hæðarinnar. Verslunar-, skrifstofu- eða þjónusturými.

2. hæð: Uppgerð um 910 fm skrifstofuhæð

4. hæð: Um 910 fm hæð, hægt að fá uppgerða til að henta nýrri starfsemi

5. hæð: Hálf hæð laus til leigu

Dagar reka mötuneyti í húsinu og í því er fasteignaumsjón. Aðkoma að húsinu er mjög góð. Bílastæði fyrir viðskiptavini eru beint fyrir framan húsið auk þess sem starfsmannabílastæði eru á lóðinni. Húsið er í alfaraleið við fjölfarnar götur. Á svæðinu er veitingahús, líkamsrækt, pósthús og fleira. Handan götunnar er matvöruverslun og ýmis þjónusta.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Jensson, sölustjóri, í síma 840 2100 eða í netfanginu halldor@reitir.is. Reitir fasteignafélag er eigandi húsnæðisins og er það eingöngu til leigu hjá Reitum. 

Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987. Innan eignasafnsins eru nú um 140 fasteignir, samtals um 460.000 fermetrar að stærð, auk metnaðarfullra þróunarverkefna. Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar, m.a. með grænum leigusamningum við fjölda viðskiptavina. 

Kynntu þér þjónustu Reita og fleira skrifstofuhúsnæði til leigu á www.reitir.is/skrifstofur 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9