Brautarholt 6, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 22 daga á skrá

Verð 35,5
Stærð 51
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 693
Skráð 22.2.2018
Fjarlægt 16.3.2018
Byggingarár 1958
mbl.is

Fasteignasalan Miðbær kynnir til sölu glæsilega og fullbúna 2ja herb íbúð á fjórðu hæð/efstu við Brautarholt 6 í Reykjavík. Um er að ræða 2ja herbergja íbúð nr. 405 sem er 51,2m2 og henni fylgja suðursvalir og er fallegt útsýni til norðurs úr svefnherbergi. Húsið er staðsett í grónu hverfi, staðsett rétt ofan við miðbæinn þar sem blandað er saman íbúðum og þjónustu. Bílastæði eru sameiginleg á lóð hússins. Í nánasta umhverfi má finna flesta þá þjónustu sem fólk þarf á að halda enda minna en fimm mín. gangur niður á Hlemmtorg.

Lýsing:
Húsið er 4 hæða lyftuhús með 7 íbúðum á efstu hæðinni. Á fyrstu þremur hæðum eru skrifstofur og þjónusta.
Eignin skiptist í:
Stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi.  Geymsluskápur er í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni. Hjólageymsla er staðsett í porti bakvið húsið.
Nánari lýsing:
Stofa og eldhús er eitt stórt bjart rými með útsýni til norðurs. Frá stofu er gengið inn í svefnherbergi  með stórum fataskáp..Opið eldhús með fallegri innréttingu, keramikhelluborði með 4 hellum, blásturofn með hitamæli, viftu með kolasíu, stálvaski og blöndunartækjum. Eldhúsinnrétting er Schmidt frá Parka og eldhústæki frá AEG. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu
Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum ásamt góðri innréttingu. Salerni er vegghengt. Sturta með glerskilrúmi og eru blöndunartæki á baði hitastýrð ásamt sturtuhaus og handúðara.  

Innréttingar og gólfefni frá Parka.
Eldhústæki eru AEG.
Hurðar frá Birgisson.
Arkitektateikningar eru frá Tark arkitektum. 
Burðarþols- og allar lagnateikningar frá Ferli verkfræðistofu.
Rafmagnsteikningar koma frá Verkís.

Allar nánari upplýsingar veita
Ingólfur Ingvarsson lgf sími 8937806 eða ingolfur@midbaer.is
Sigfús Aðalsteinsson lgf sími 8989979 eða sigfus@midaer.is

 
 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21