Engihjalli 9, 200

Fjarlægð/Seld - Eignin var 4 daga á skrá

Verð 44,9
Stærð 97
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 461
Skráð 5.5.2021
Fjarlægt 9.5.2021
Byggingarár 1978
mbl.is

Domusnova og Árni Helga fasteignasali hafa fengið til sölu mjög fallega 4-5 herbergja íbúð og mikið endurnýjaða að Engihjalla 9. Íbúðin er á þriðju hæð og skartar tvennum svölum, nýuppgerðu baðherbergi, miklu útsýni til norðurs og austurs auk þess sem þak hefur verið viðgert nýlega. Ný gólfefni á nánast allri íbúðinni, nýir skápar í holi og hjónaherbergi og eldhúsinnrétting endurnýjuð fyrir um 10 árum.

Lýsing eignar:

Þegar komið er inn í íbúðina er baðherbergi á vinstri hönd og herbergin síðan öll í framhaldi af því beint af augum. Eldhús er á hægri hönd sem og stofa. Útgengt er á svalir úr stofu og hjónaherbergi. Bætt hefur verið við einu herbergi með því að minnka stofuna og er auðvelt að fjarlægja það og stækka stofuna sem er þó ágætlega stór. Sama parket á öllum flötum sem parket er á, flísar á eldhúsi og baðherbergi. 

Stofan er ágætlega rúmgóð með nýju harðparketi og er útgengt á stórar svalir úr stofunni.
Eldhús er rúmgott með góðum borðkrók, flísar eru á gólfi og eldhúsinnréttingin var endurnýjuð fyrir nokkrum árum.
Hjónaherbergið er stórt með góðum nýjum skáp og nýlegu harðparketi á gólfi
Tvö barnaherbergi skv. teikningu en bætt hefur verið við þriðja herberginu og er skápur í tveimur þeirra en parket á öllum gólfum. 
Baðherbergið er nýuppgert með upphengdu salerni, nýjum tækjum og flísalagt.

Sameign lítur vel út og er nýlegt teppi, skipt var um járn og pappa á þaki 2018 en til stendur að fara í múrviðgerðir, skipta um gler þar sem þarf og mála blokkina og hefur verið safnað í sjóð til þess. Kaupandi tekur við að greiða í þann sjóð. Tvær lyftur eru í húsinu.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20