Brókarstígur 9, 311

Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá

Verð 39,9
Stærð 92
Tegund Sumarhús
Verð per fm 433
Skráð 30.8.2023
Fjarlægt 8.9.2023
Byggingarár
mbl.is

Brókarstígur 9, 311 Borgarnes í skipulagðri sumarhúsabyggð að Selborgum við Brókarvatn.

Til sölu nýbyggt sumarhús 2022, 92,2 fm sem skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi, þvottahús með gestasalerni og alrými sem rýmir vel stofu, borðstofu og eldhús. Saunatunna og rafmagnspottur standa á sólpallinum sem snýr á þrjá vegu. Húsið stendur á 3.211 fm leigulóð.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Húsið verður afhent fullbúið með öllu innbúi og tækjum sem sýnt er við skoðun hússins.
Neysluvatn er úr varmadælu og húsið er kynnt með nútíma rafmagnsofnum. 

Nánari lýsing á eigninni:

Gengið er inn í anddyri og þar er fallegur tréstigi upp á rúmgott svefnloftið. Góður gluggi með flóttaleið.
Á svefnherbergisgangi er þvottahús með öllum þægindum eins og vask í skápaeiningu, spegli, handklæðaofni ásamt þvottavél og þurrkara og nýtist það einnig sem fullbúið gestasalerni, vinylflísar á gólfi. 
Hjónaherbergi  með tvíbreiðu rúmi með gafli, hillum og fataskáp.
Herbergi II með rúmi með gafli og kommóðu. 
Baðherbergið er með baðkari, upphengdu klósetti, vaski á skápaeiningu og sturtuklefa. Vínylflísar á gólfi og baðplötur á veggjum. Baðherbergisgluggi með opnanlegu fagi.
Alrýmið er stórt opið rými með góðri lofthæð, stóra og bjarta glugga á þrjá vegu og svalahurð út á pall.
Eldhúsið er með rúmgóðri L innréttingu, innbyggðan ísskáp og uppþvottavél, helluborð og bakaraofn. Nægt vinnurými og skápar/hirslur bæði uppi og niðri.
Stofan er rúmgóð, með sjónvarpi, skenk, sófaborðum, sófa og tveimur stólum. 
Borðstofan er með stóru fallegu viðarborði með stólum fyrir sex manns.
Góð geymsla er úti við inngang hússins, þar sem allar stofnlagnir koma inn, rafmagn og vatn.
Við inngang hússins er stór rafmagns heitapottur og saunatunna.
Lóðin er gróin, gott bílastæði er við húsið og aðkoman er snyrtilegt. Húsið er með harðparketi á öllum gólfum utan vínylflísa sem eru á votrýmum.

Sumarhúsafélagið Selborgir er með árgjald upp á 12.000 kr á ári og er einnig vatnsgjald fyrir kaldavatnsnotkun 20.000 kr á ári.

Það er símahlið til að komast inn á lokað sumarhúsasvæðið sem sumarhúsið stendur á. 

Brókarvatn er um 10 km frá Borgarnesi þar sem alla þjónustu má fá, matvöru- og aðrar verslanir, lögregla, slökkvilið og sjúkrahús ásamt allri íþróttaaðstöðu, sundlaug og golfvöllur.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfangin alli@trausti.is og Sonata Szczepanek, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 764-6334 eða á netfanginu sonata@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20