Hverfisgata 94, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 69,9
Stærð 122
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 571
Skráð 27.10.2020
Fjarlægt 3.11.2020
Byggingarár 2018
mbl.is

RE/MAX Senter kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir á Barónsstíg 6 og Hverfisgötu 94 - 96, 101 Reykjavík

** Vinsamlegast bókið skoðun hjá Guðrúnu Lilju í síma 867-1231 /gudrunlilja@remax.is   **

Íbúð merkt 0303.  Vönduð og vel skipulögð þriggja herbergja 122,4 fm íbúð ásamt stæði í bílageymslu í glæsilegri nýbyggingu á besta stað í miðborg Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu.  Aðalhönnuður hússins er Tryggvi Tryggvason á Opus en innanhúshönnuðir eru Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnar.

Eldhús er opið með sérsmíðaðri innréttingu upp að lofti og tæki frá viðurkenndum framleiðanda. Stofa er stór og björt með útgengt út á 7,1 fm svalir, tvö rúmgóð svefnherbergi með sérsmíðuðum fataskápum.  Baðherbergi með vönduðum tækjum og sérsmíðuðum innréttingum.  Þvottahús í íbúð.  Í bílakjallara er sér 5,6 fm geymsla ásamt bílastæði sem fylgir. 

Anddyri er flísalagt (hálkufríar) með uppsettum mynddyrasíma, póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. 
Innkeyrsla að bílgeymslu verður sameiginleg með Hverfisgötu 92.

Myndir eru teknar í sýningaríbúð 0206 og sýna efnisval og frágang.  Í húsinu eru 38 íbúðir á 2.-5. hæð – tveggja til fimm herbergja. Stærðir eru frá 59 – 186 fermetrar.  Íbúðirnar verða afhendar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar á gólfum.  Íbúðir eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi.  Á fyrstu hæð eru verslunar- og veitingarrými.  

Mikið hefur verið lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan.   Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan suður garð. Sjá skilalýsingu og nánari upplýsingar á https://hverfis.is 

Nánari upplýsingar veita Guðrún Lilja Tryggvadóttir, aðstoðarmaður fasteignasala/í lögg.námi í sima 867-1231 / gudrunlilja@remax.is, Gunnar Sverrir Harðarson lögg.fast. 862-2001 / gunnar@remax.is og Ástþór Reynir lögg. fast. í síma 899-6753 / arg@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11