Völuteigur 31A, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 154 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 2.754
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 16.5.2019
Fjarlægt 17.10.2019
Byggingarár 2007
mbl.is

Miklaborg kynnir: Atvinnuhúsnæði við Völuteig 31A í Mosfellsbæ. Húsið er 2.737 fm og stendur á stórri afgirtri og malbikaðri lóð. Frábær staðsetning á höfuðborgarsvæðinu. Húsið er iðnaðarhúsnæði með skrifstofum, sýningarsal og starfsmannaaðstöðu. Öflugt loftræsti- og brunavarnarkerfi.

Um er að ræða atvinnuhúsnæði, samtals 2.737 fm. Húsið stendur á afgirtri og malbikaðri lóð sem er sameiginleg með Völuteig 31, samtals 15.048 fm.

Völuteigur 31A (fastanúmer 230-4834) - 2.737 fm einingahús á steyptum grunni, byggt árið 2007 úr forsteyptum einingum. Húsnæðið er iðnaðarhúsnæði með skrifstofuaðstöðu á millilofti ásamt sýningar- og söluaðstöðu á jarðhæð. Í húsinu er góð starfsmannaaðstaða með skápum, sturtum og salernum fyrir bæði kyn. Öflugar brunavarnir eru í húsinu, bæði vatnsúðarakerfi og brunahólfun. Einnig er öflugt loftræstikerfi í húsinu. Fasteignamat 2019 er kr. 391.200.000 og brunabótamat 651.500.000.

Lóð og athafnasvæði er malbikað og upphitað, samtals 15.048 fm að stærð. Rúmgott athafnasvæði er við húsið, vel girt með vinnugirðingum og rafstýrðu stálhliði. Stór hluti girðingar vestan megin við húsið er 5 metra há ógagnsæ girðing úr timburverki og veitir því gott skjól fyrir veðri og vindum. Bílastæði eru að austanverðu meðfram Völuteigi 31 og 31A og norðan megin við Völuteig 31. Nýtingarhlutfall er í dag um 0,31 sem er nokkru lægra en nýtingarhlutfall nærliggjandi lóða.

 

Nánari upplýsingar veita: 
Ásgrímur Ásmundsson hdl. og löggiltur fasteignasali, sími 865-4120 eða asi@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali, sími 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7