Sunnusmári 7 (201), 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá

Verð 79,9
Stærð 108
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 740
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt 1.5.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

NÝTT Á SKRÁ! 3-4ra herbergja íbúð með svölum til suðvesturs.

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára 7 í Kópavogi. 34 nýjar og glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi. Um er að ræða fjölbreyttar 3ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.


Íbúð 201: Er glæsileg 3-4ra herbergja íbúð. Heildarstærð er 108,0 fermetrar og er staðsett á annarri hæð. Íbúðinni fylgir 11,6 fermetra geymsla. Rúmgóðar 6,6 fermetra svalir til suðvesturs. Afhending er áætluð í apríl - maí 2024 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Nánari lýsing hér neðar.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: Sölusíða - Sunnusmári 9-13

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Páll Konráð Pálsson í síma: 820-9322 / PALL@FASTLIND.IS


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með stofu/borðstofu, 2-3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á rúmgóðar svalir til suðvesturs úr stofu. 


Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Svefnherbergin: Er tvö til þrjú talsins.
Stofa: Rúmar setustofu/borðstofu. Opin við eldhús.
Svalir: Til suðvesturs.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél, vifta og innbyggður kæliskápur með frysti).
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. 
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útloftun.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia (flutt inn af GKS) og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Ýmist með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS) en svörtum efri skápum eða með ljósum innréttingum. Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Hafðu samband til þess að fá nánari skilalýsingu. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6