Þjóðbraut íb. 404 5, 300

Fjarlægð/Seld - Eignin var 4 daga á skrá

Verð 50,0
Stærð 61
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 818
Skráð 26.4.2024
Fjarlægt 1.5.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

LIND Fasteignasala og Bestla Byggingarfélag kynna með stolti nýtt og vandað lyftuhús að Þjóðbraut 5 – Akranesi.
Íbúðirnar eru sérlega glæsilegar og heildstæð hönnun í höndum Rutar Káradóttur en um er að ræða fyrsta fjölbýlishúsið sem hún hannar frá grunni. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Aníta Olsen Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala 615-1640 - anita@fastlind.is

Kristján Þórir Hauksson 696-1122 - KRISTJAN@FASTLIND.IS

Íbúð 0404 er 2ja herbergja íbúð á 4.hæð. Birt stærð 61,1 fm. Eigninni tilheyra svalir 7,7 fm.  
Skoða söluvef: Þjóðbraut 5

Íbúðir afhendast fullbúnar, vandlega innréttaðar, votrými flísalögð, en án annara gólfefna. Nánar skv skilalýsingu.

• Tegundalisti helstu innviða
: Innréttingar og fataskápar: Voke-3 - Flísar: Pro Stone Light Gray, söluaðili Álfaborg - Málning: Flugger/Slippfélagið Innihurðar: Ringi, söluaðili Birgisson - Blöndunartæki: Grohe - Eldhústæki: AEG og Airforce/Elica, söluaðili Ormsson.

Fjölbýlishúsið að Þjóðbraut 5 er staðsett í íbúðarhverfi í uppbyggingu á Akranesi. Byggingin er 5 hæðir með 38 íbúðum af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Eitt stiga- og lyftuhús er í byggingunni. Svalagangar tengjast saman í vinkil á 2.-5. hæð og er aðgengi að stigahúsi frá tveim áttum. Þá hafa íbúðir á jarðhæðum sem snúa til norðurs sérinngang má segja. Íbúðir 104-108 hafa sérinngang frá garði sem og einnig hægt að ganga inn í gegnum stigagang sem er læstur beggja vegna. Á 1. – 5. hæð eru íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Í kjallara hússins er sameiginleg bílageymsla með bílastæðum fyrir 26 bifreiðir. Að auki eru í kjallara sérgeymslur fyrir hluta íbúða ásamt vagna- og hjólageymslu og sameiginlegum tæknirýmum. Útveggir einangraðir að utan og klæddir með báruáli, þannig er viðhaldi hússins haldið í lágmarki. 
Stéttar fyrir framan bygginguna og verandir á sérafnotaflötum íbúða eru hellulagðar eða steyptar skv. teikningum arkitekta. Hitalögn er í helstu gönguleiðum og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Grasflatir eru þökulagðar. Gróður er í gróðurbeðum skv. teikningum landslagsarkitekts. Bílastæði eru austan og norðan megin við húsið og eru stæði aðskild með hvítum línum. Sérafnotareitir fylgja íbúðum á fyrstu hæð sem verða timburpallur. Frágangur lóðar er að öðru leiti samkvæmt teikningum landslagsarkitekts (Landslag ehf).
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2