Jöfursbás 7B - 101, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
58,4
|
Stærð |
64
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
905
|
Skráð |
6.2.2024 |
Fjarlægt |
16.2.2024 |
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
|
Domusnova og Ingunn Björg kynna glæsilega 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérafnotafleti til suðurs út frá stofu í fallegu lyftuhúsi við Jöfursbás 7B.
Stærð íbúðarinnar er skráð skv. HMS 64,50 fm þar af er 6,6 fm geymsla í sameign. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, útgegnt á timburlagða verönd með skjólvegg úr stofu, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og eitt svefnherbergi. Aukin lofthæð yfir 280 cm. Gólfhiti er í allri íbúðinni.Innanhúshönnuður kom að hönnun allra íbúða:- Sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE-III
- Heimilstæki frá AEG
- Quartz steinn frá Technistone á borðplötum í eldhúsi og á baðherbergi
- Blöndunartæki frá Grohe - Hreinlætistæki frá Duravit
- Parket og flísar frá Ebson
Jöfursbás er staðsett í stórglæsilegu nýju íbúahverfi sem nú er að rísa við strandlengju Gufuness í Reykjavík. Hverfið sem er að byggjast upp er suðupottur skapandi greina og einkennist í dag af skapandi iðnaði, kvikmyndagerð, listsköpun og íbúðum. Óþrjótandi útivistarmöguleikar í mikilli náttúruparadís. Í Spönginni má finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.
Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.isFrekari lýsing íbúðar:Forstofa : Fín forstofa með innbyggðum fataskáp.
Eldhús : Falleg og vönduð innrétting frá Voke III með Quartz stein á borðplötu og efri skápum sem ná til lofts. Innbyggður ísskápur með frysti, innfelld uppþvottavél ásamt bakaraofni og helluborði, öll heimilistæki eru frá AEG.
Stofa : Björt og rúmgóð með góðum gluggum á tvo vegu. Utgengt á 8, fm tímburlagðan sérafnotaflöt með skjólvegg.
Baðherbergi : Flísalagt gólf og hluti veggja. Falleg innrétting með granitborðplötu, speglaskápur á vegg fyrir ofan vask. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Svefnherbergi : Rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.
Geymsla : 6,6 fm á sér geymslugangi í kjallara hússins.
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara. Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar. Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.