Davíðshagi 201, 600

Fjarlægð/Seld - Eignin var 498 daga á skrá

Verð 38,2
Stærð 97
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 394
Skráð 21.8.2018
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 2018
mbl.is

Davíðshagi 6 íbúð 201 - 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í 3ja hæða fjölbýli með lyftu í Hagahverfi - stærð 96,9 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla er í kjallara.

Plast parket er á öllum gólfum íbúðar að forstofu, baðherbergi/þvottahúsi og geymslu í sameign undanskildu, þar eru flísar.

Forstofa: Flísar á gólfi og tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum.
Eldhús: Innrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Svart keramik helluborð, stál bakaraofn, innbyggð vifta og ísskápur.
Stofa: Plast parket á gólfi og hurð út á 10,4 m² svalir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með plast parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Innrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Gólf og veggir eru flísalagt, vegghengt wc, sturtuhorn úr gleri og blöndunartæki af vandaðri gerð. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sér geymsla er í kjallara, 11,3 m² að stærð. Flísar á gólfi.

Annað
- Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðar.
- Sólbekkir eru formbeygðir úr hvítu harðplasti.
- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
- Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum.
- Kappalýsing er á baðherbergi og eldhúsi, einnig fylgja loftljós í þvottahúsi og baðherbergi.
- Stigahús er með flísum á jarðhæð en teppi á stigagöngum.
- Hjóla- og vagnageymsla er flísalögð.
- Bílastæði og gangstétt er steypt, eða malbikað. Lóðin er þökulögð með túnþökum.
- Afhendingartími: Desember 2018 - febrúar 2019

Byggingaraðili er HYRNAN ehf.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3