Þykkvibær 20, 110
Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá
Verð |
64,9
|
Stærð |
168
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
387
|
Skráð |
26.11.2016 |
Fjarlægt |
29.11.2016 |
Byggingarár |
1969 |
mbl.is |
|
Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Þykkvibær 20 - einstaklega vel staðsett einbýlishús við Elliðarárdalinn.
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er á einni hæð ásamt bílskúr. Það stendur neðst niðri í botnlanga á sérlega fallegum stað þar sem útsýnið er einstakt. Nánari lýsing eignarinnar: Komið er inn á anddyri með flísum og góðum skápum (gert var ráð fyrir því í upphafi að gestasnyrting sé í anddyri). Hol með parketi. Björt og falleg stofa og borðstofa með parketi á gólfi, tvö þrep eru upp frá borðstofunni í stofuna. Í stofunni er fallegur arinn og er flísalagt í kringum hann, góð lofthæð er í stofunni. Einstaklega vel um gengið eldhús, upprunaleg innrétting og dúkur á gólfi. Innaf eldhúsinu er þvottahús og þar er búr og geymsla. Úr þvottahúsinu er gengt út á baklóðina. Svefnherbergisgangur með parketi, útgengt af ganginum út á hellulagða verönd í suður. Rúmgott hjónaherbergi með dúk á gólfi og góðum fataskápum. Herbergi með dúk á gólfi og fataskáp. Stórt sjónvarpsherbergi með parketi á gólfi (þetta herbergi er tvö á teikningu og væri hægt að breyta í samræmi við það). Baðherbergi sem er upprunalegt, flísar á gólfi og veggjum, innrétting og baðkar ásamt sturtu. Bílskúrinn er fullbúinn og rúmgóður. Húsið er klætt að utan með Steni og er því að mestu viðhaldslítið. Þak hefur verið yfirfarið og járn endurnýjað. Fallegt Drápuhlíðargrjót setur sterkan svip á húsið. Sérlega falleg lóð í góðri rækt, m.a. matjurtagarður. Geymsluskúr á lóðinni fylgir með. Einstök staðsetning með sérlega fallegu útsýni og tengingu við fallega náttúruna. Bygging hússins hófst árið 1969 en flutt var inn í það 1974. Aðeins tveir eigendur frá upphafi.
Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is